Stjórnun og rekstur sveitarfélaga 10 ECTS
- Einingabær námskeið í samstarfi við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri
-
Námsskeiðs gjald
kr 130.000
Yfirlit
Námskeið á meistarastigi við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri - 10 ECTS einingar
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum þekkingu á íslenska sveitarstjórnarstiginu, stjórnun, rekstur og starfsemi sveitarfélaganna. Helstu efnisþættir eru:
- Tilgangur, hlutverk og verkefni sveitarstjórnarstigsins og stöðu sveitarfélaganna í stjórnkerfinu.
- Stjórnsýsla, lýðræði og stefnumótun á sveitarstjórnarstiginu.
- Þróun sveitarstjórnarstigsins. Sameining og samvinna sveitarfélaga.
- Löggjöf um sveitarstjórnir og sveitarfélög.
- Rekstur og fjármál sveitarfélaga.
- Sveitarfélög og atvinnulíf. Staðarval fyrirtækja.
- Sveitarfélög, byggðaþróun og búferlaflutningar.
- Samfélagsleg og landfræðileg áhrif samgangna og fjarskipta
- Vöxtur byggða og borga.
- Sveitarfélög á 21. öldinni. Útlit og horfur.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er alfarið í fjarnámi.
Allir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir á kennsluvef námskeiðsins.
Gert er ráð fyrir a.m.k. 3 tímum þar sem kennarar og nemendur funda á Zoom.
Efnisskrá
Að námskeiðinu loknu skal nemandi:
· kunna skil á íslenska sveitarstjórnarstiginu
· þekkja mismunandi uppbyggingu sveitarfélaga
· þekkja til stjórnsýslu sveitarfélaga og geta tekist á við hana eða tekið þátt í henni óháð stærð sveitarfélags
· kunna skil á rekstri og fjármálum sveitarfélaga
· áætlanagerð
· útgjöldum og tekjustofnum
· þekkja til helstu ytri þátta í umhverfi sveitarfélaga sem þau þurfa að takast á við svo sem samskipti við atvinnulíf, byggðaþróun og samgöngumál.
Námsmat:
BSc. - nemendur: Verkefni 15% - Skriflegt próf 85% - 3 tíma próf
Inntökuskilyrði
Ef nemandi ætlar að fá einingarnar metnar, þarf nemandi að hafa lokið grunngráðu í Háskóla.
Dagskrá
Námskeiðið hefst 9. janúar.
I. Hluti.
Inngangur: Sveitarstjórnarkerfið og sveitarfélögin.
Breytingar og þróun.
Stjórnsýsla og stefnumótun. (10t)
Kennari: Grétar Þór Eyþórsson F-1. (3t). Sveitarfélög. Sveitarstjórnarkerfið á Íslandi. Inngangur. F-2. (3t). Stjórnsýsla og stjórnkerfi sveitarfélaga. Stefnumótun. F-3. (4t). Breytingar og þróun. Sameining sveitarfélaga. Samstarf.
II. Hluti.
Rekstur sveitarfélaga. Útgjöld, tekjur, áætlanagerð og reikningshald. Fjárfestingar. (11t)
Kennarar: Vífill Karlsson, Dan Brynjarsson. F-6. (3t) Tekjur sveitarfélaga, tekjustofnar, áhrifaþættir, breytileiki eftir stærð sveitarfélaga. F-7. (6t) Kostnaður sveitarfélaga eftir málaflokkum, samanburður á milli sveitarfélaga og alþjóðlegur samanburður. Mikilvægustu kennitölur úr rekstri sveitarfélaga og samanburður á milli sveitarfélaga. Val á samanburðarsveitarfélagi. F-8. (2t) Reikningshald og rekstraráætlanagerð sveitarfélaga.
III. Hluti.
Rekstur og rekstrarumhverfi sveitarfélaga. (6t).
Kennari: Vífill Karlsson F-9. (3t) Rekstrarumhverfi sveitarfélaga og áhrif á tekjur og kostnað. Áhrif ytri þátta eins og gengis íslensku krónunnar, atvinnuleysis, atvinnuuppbyggingar, staðsetningar og ýmissa annarra ytri sem innri skilyrði á tekjur og kostnað sveitarfélaga. F-10. (3t) Þjónusta sveitarfélaga og mælingar á ánægju með hana ásamt samanburði á milli sveitarfélaga. Hvernig tengjum við slíkar mælingar við fjármál sveitarfélaga ásamt því að draga út vísbendingar um forgangsröð verkefna…
IV. Hluti.
Afkoma sveitarfélaga. (4t)
Kennarar: Vífill Karlsson, Stefán B Gunnlaugsson. F-11. (2t) Skuldir sveitarfélaga, lánsáhætta og þróun fjárhagsstöðu. F-12. (2t) Afkoma sveitarfélaga.
V. Hluti.
Sveitarfélög, svæði, samgöngur og byggðaþróun. (14t)
Kennarar: Vífill Karlsson, Jón Þorvaldur Heiðarsson og Grétar Þór Eyþórsson. F-13. (3) Íbúaþróun sveitarfélaga, búferlaflutningar, byggðaþróun. F-14. (3t) Landvirði, fasteignamarkaður, íbúðamarkaður. F-15. (3t) Samgöngur og áhrif þeirra á stöðu sveitarfélaga. F-16. (4t) Samgöngur og byggðaþróun. F-17. (1t) Sveitarfélög á 21. öldinni. Útlit og horfur.
Kennarar
Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða