-
Námsskeiðs gjald
kr 35.000
Yfirlit
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að læra að nota R til gagnaúrvinnslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði og góða siði við forritun í R, uppsetningu á endurvinnanlegum kóða sem nýtist við rannsóknir ásamt úrvinnslu og framsetningu gagna.
Meðal þess sem farið verður yfir í þessu námskeiði er:
- málskipan og uppsetning á forksriftum í R
- notkun og skilgreiningar á föllum
- töflustrúktur og geymsla gagna
- myndræn framsetning á gögnum
Athugið að hægt er að taka námskeiðið í fjarnámi sé þess óskað. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag er hægt að fá með því að hafa samband við Stefán í stefangudna@unak.is
Efnisskrá
Námskeiðið hentar nemendum með enga fyrri reynslu í forritun. Skilningur á grunnhugtökum tölfræðinnar er æskilegur.
Aðföng
Nemendur þurfa að mæta með eigin tölvu (Windows 7, 8, 10; OSX; Linux). Tölvan þarf að hafa uppsett R (https://cran.hafro.is/) og Rstudio (https://www.rstudio.com/products/rstudio/download/).
Bent er á þessa slóð fyrir leiðbeiningar við uppsetningu á hugbúnaðinum.
Tímasetning
Námskeiðið er kennt þrjú kvöld í viku.
Dagur 1 – Málskipan í R:
17. október klukkan 19:00-21:00
Farið verður yfir málskipan og setningafræði R. Undirstöðuatriði kynnt sem grunnur að skilningi nemenda:
- Tölustærðir, vigrar og gagnatög
- Strengir
- Fylki og listar
- Gagnarammar (data frames)
Dagur 2 – Gagnaforvinnsla í R:
24. október klukkan 19:00-21:00
- Hugtakið „hrein gögn“ (tidy data) kynnt
- Lestur gagna inn í R
- Hreinsun gagna og meðhöndlun gagna
- Vistun gagna úr R
Dagur 3 – Gagnagreining í R:
31. október klukkan 19:00-21:00
- Farið verður yfir hvernig hægt er að nýta R við ýmiskonar tölfræðiúrvinnslu:
- Töfluúrvinnsla, tvívíðar og þrívíðar
- Samanburður á meðaltölum þýða
- Einföld línuleg líkön, inngangur að blönduðum líkönum
- Myndræn framsetning á niðurstöðum greininga
Kennarar
Friðgeir Sverrisson BA í sálfræði frá HA og MPH í lýðheilsufræði frá HÍ.
Friðgeir hefur mikla reynslu af því að notast við R í námi, kennslu og vinnu.
Kostnaður
Námskeiðið kostar 35.000krónur.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða