fbpx

Undirbúningsnámskeið í almennri efnafræði

- Aðfaranámskeið

Yfirlit

Undirbúningsnámskeið í almennri efnafræði fyrir nýja háskólanemendur verður haldið seinni partinn í ágúst nk.

Hagnýtar upplýsingar

Í námskeiðum í auðlindafræði, heilbrigðis- og kennaradeildum er gert ráð fyrir að nemendur hafi þessa grunnþekkingu.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er í fjarkennslu i zoom, efni tekið upp og þannig aðgengilegt fyrir þau sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.

Efnisskrá

Námslýsing: Fjallað verður um grundvallaratriði í ólífrænni efnafræði. Byggingu atóma, lotukerfið, efnatengi, efnahvörf, magnútreikninga, sýrur og basa.

Námsmat: Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir nemendur með lítinn eða engan undirbúning í efnafræði að sækja þetta námskeið og nýta tímann vel.

Lesefni: Fyrirlestra- og dæmahefti, tekið saman af kennara, sem sent verður nemendum rafrænt í kjölfar greiðslu námskeiðsgjalds.

Dagskrá

Námskeiðið er frá 22.-26. ágúst. nk. kl.16:15-18:50 í zoom.

Kennarar

Árný I. Brynjarsdóttir, efnafræðikennari.

Kostnaður

16.000 kr. Krafa er send í heimabanka sem greiðist fyrir upphaf námskeiðs.

Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða