Vel heppnaður alþjóðlegur verkefnafundur á Íslandi
Símenntun Háskólans á Akureyri (SMHA), ásamt Kennslumiðstöð Háskólans á Akureyri (KHA) hafa undanfarin misseri staðið að samstarfsverkefninu ET Case í gegnum Erasmus +. Ásamt aðkomu þessara eininga innan HA þá koma að verkefninu stofnanir frá Tékklandi, Póllandi, Þýskalandi, Serbíu, Ítalíu og Slóveníu.
Í október hélt SMHA i utan um alþjóðlegan verkefnafund (TPM) í tengslum við ET CASE verkefnið, þar sem samstarfsaðilar frá Evrópu komu saman. Fundurinn tókst afar vel og einkenndist af góðu samstarfi, skýrum framvinduáætlunum og markvissri vinnu að næstu skrefum verkefnisins.
Á fundinum var farið yfir stöðu rannsóknarvinnu og þróun verkefnapakka, auk þess sem lögð var áhersla á áframhaldandi þróun kennsluefnis og aðgerða fyrir framhaldsskóla. Samstarfsaðilar deildu reynslu og styrktu tengsl sín, sem er lykilatriði fyrir árangur verkefnisins.
Fundurinn á Akureyri markar mikilvægan áfanga í ET CASE verkefninu og undirstrikar sterkt framlag UNAK til alþjóðlegs samstarfs á sviði sjálfbærni og menntunar.
ET CASE er Erasmus+ samstarfsverkefni sem miðar að því að efla menntun í framhaldsskólum um hringrásarhagkerfi og sjálfbæra neyslu. Verkefnið er byggt á þeirri forsendu að ungt fólk muni standa frammi fyrir auknum skorti á auðlindum í framtíðinni og því sé mikilvægt að menntakerfið bregðist við með því að þróa nýjar og áhrifaríkar kennsluaðferðir.
Í verkefninu er unnið að því að skilja betur viðhorf og hegðun nemenda gagnvart sjálfbærni, meðal annars með rannsóknum og tilraunum. Á sama tíma eru þróuð hagnýt verkefni fyrir skóla þar sem nemendur taka virkan þátt í aðgerðum tengdum hringrásarhagkerfi og læra með því að gera.
Einnig er verið að þróa nýtt kennsluefni og verkfæri fyrir kennara sem gera þeim kleift að kenna um sjálfbæra neyslu á aðlaðandi og árangursríkan hátt. Með þessu er markmiðið að styrkja hæfni bæði kennara og nemenda og hafa raunveruleg áhrif á hegðun og skilning til lengri tíma.
