Útskrift Leiðsögumanna 2026
Það var sannkallaður gleðidagur á Strikinu síðastliðinn föstudag þegar útskrift úr leiðsögunámi SMHA fór fram við hátíðlega athöfn. Alls útskrifuðust 13 nemendur úr náminu, en fjórir komust því miður ekki til athafnarinnar.
Útskriftarnemendur 2026 eru Anna Berg Samúlesdóttir, Anna-Catharina Varga, Ekaterina Marnitcyna, Elías Bj. Gíslason, Eva Hjörtína Ólafsdóttir, Halldór Gunnar Hálfdansson, Henriette Hintze, Ingunn Helga Bjarnadóttir, Regina Gentner, Rita Tallárom, Rúnar Freyr Júlíusson, Sólrún María Arnardóttir og Vigdís Klara Aradóttir.
Leiðsögunámið hjá SMHA er metnaðarfullt faglegt nám sem byggir á skýrum gæðaviðmiðum og hefur á undanförnum árum verið þróað markvisst í takt við kröfur ferðaþjónustunnar. Námið uppfyllir evrópskan staðal um menntun leiðsögumanna og tryggir þannig að útskrifaðir nemendur búi yfir þeirri þekkingu, færni og hæfni sem krafist er í alþjóðlegu samhengi.
Við útskriftina var sérstaklega horft til þeirrar þrautseigju og fagmennsku sem nemendur hafa sýnt í gegnum námið. Að ljúka þriggja anna námi með vettvangsferðum og verklegri þjálfun samhliða vinnu og öðrum skuldbindingum er verulegur árangur og bera útskriftarnemar með sér sterkan faglegan grunn inn í atvinnulífið.
Starf leiðsögumanns er bæði skemmtilegt og gefandi en jafnframt krefjandi og ábyrgðarmikið. Það kallar á víðtæka þekkingu á náttúru, sögu og samfélagi, framúrskarandi samskiptahæfni og getu til að takast á við ófyrirséðar aðstæður. Í náminu er lögð rík áhersla á að undirbúa nemendur fyrir þetta hlutverk með blöndu af fræðilegri kennslu, vettvangsnámi og staðlotum þar sem raunverulegar aðstæður eru æfðar.
Margrét Kristín Jónsdóttir verkefnastjóri námsins og kennari sagði í ræðu sinni að tímamót hefðu orðið haustið 2025 þegar allt leiðsögunám á Íslandi fór í gegnum úttekt BSI, að frumkvæði Deildar leiðsögufólks innan VR, til að meta hvort námið uppfyllti evrópskan gæðastaðal. Niðurstaðan var sú að leiðsögunám SMHA hlaut vottun snemma árs 2026. Útskriftarhópurinn nú er sá fyrsti sem lýkur námi eftir þessa vottun og af því tilefni fengu nemendur svokallaðan skjöld eða Gullmerkið að gjöf frá VR afhentan með prófskírteinum sínum.
Margrét benti einnig á að hópurinn hefði verið bæði öflugur og alþjóðlegur. Nemendur hefðu staðið sig afar vel þrátt fyrir að námið væri krefjandi, sérstaklega fyrir þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.
Í ræðu sinni lagði Stefán forstöðumaður Símenntunar HA, áherslu á gæði námsins og tilgang þeirra krafna sem gerðar eru til nemenda:
„Þið hafið lagt mikið á ykkur til að komast hingað í dag. Og það skiptir máli að þið vitið að krafan sem gerð var til ykkar var ekki til að gera ykkur lífið erfitt — heldur til að tryggja að þið séuð í stakk búin til að standa ykkur vel.
Það er eitthvað sem við hjá Símenntun erum stolt af. Við trúum því að gæði skipti máli. Að fagmennska skipti máli. Og að fólk finni muninn þegar það fær leiðsögumann sem kann sitt fag.“
Stefán veitti SBA Norðurleið þakklætisvott fyrir aðkomu sína að náminu en SBA styrkir námið rausnarlega með aðgangi að rútum fyrir allar vettvangsferðirnar sem og gefur nemendum tækifæri til þess að spreyta sig í starfi leiðsögumanns á meðan á námi stendur.
Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands ávarpaði einnig samkomuna og lagði áherslu á mikilvægi námsins fyrir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og á landinu öllu.
Arnheiður benti á að leiðsögumenn gegni lykilhlutverki í að dreifa þekkingu og upplifun um landið og að sérstaða námsins hjá SMHA felist meðal annars í því að nemendur kynnist landinu í heild sinni. Á meðan sambærilegt nám á höfuðborgarsvæðinu geti stundum verið bundið við það svæði, fá nemendur SMHA reynslu af leiðsögn um landið allt.
Ingibjörg Elín Jónasdóttir, verkefnastjóri námsins og kennari, lagði áherslu á mikilvægi leiðsögumanna fyrir ferðaþjónustuna og benti á að með vaxandi fjölda ferðamanna sé mikil þörf fyrir vel menntað fagfólk:
"Ferðaþjónusta er ein af okkar umfangsmestu starfsgreinum og þar af leiðandi eru leiðsögumenn afskaplega mikilvæg fagstétt. Í ár eigum við von á um það bil 2,3 milljónum erlendra ferðamanna til Íslands, það kallar á nokkuð mörg dagsverk leiðsögumanna – það er sem sagt gríðarleg þörf fyrir starfskrafta ykkar."
Ingibjörg minnti á að hlutverk leiðsögumannsins byggi á faglegri þekkingu, ábyrgð og stöðugri færniþróun en einnig á hæfni til að veita góða og örugga þjónustu, sem og krefjist næmni fyrir þörfum og væntingum fjölbreytts hóps ferðamanna.
Símenntun Háskólans á Akureyri er afar stolt af útskriftarhópnum og þeim árangri sem námið stendur fyrir. Með markvissri uppbyggingu, sterkum tengslum við atvinnulífið og skýrum gæðaviðmiðum hefur leiðsögunámið fest sig í sessi sem traust og eftirsótt menntun á sviði ferðaþjónustu.
Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.
Nú er hafin skráning í námið sem hefst í janúar 2027 en skráningarfrestur er til 15. september 2026. Hámarksfjöldi er í námið og hvetjum við því áhugasöm til að sækja um sem fyrst.
