fbpx

Stjórnendanámið útskrifar 19 nemendur

Síðastliðinn föstudag, þann 5. júní, fór fram hátíðleg útskrift úr Stjórnendanámi STF og SMHA þar sem 19 þátttakendur luku námi. Athöfnin var haldin á Strikinu á Akureyri í einstöku blíðskaparveðri og skapaðist þar hlý og gleðileg stemning.

Stjórnendanámið leiðir þátttakendur í gegnum fimm lotur þar sem fyrst er lögð áhersla á sjálfsþekkingu, leiðtogahlutverkið og notkun gervigreindar í stjórnun, því næst mannauðsstjórnun, starfsumhverfi og velferð starfsfólks, síðan innra skipulag fyrirtækja, stefnumótun og gæðamál, þá rekstrarstjórnun, markmiðasetningu, mælingar og hagræðingu, og að lokum ytra umhverfi fyrirtækisins, samskipti við hagsmunaaðila, sjálfbærni og framtíðaráskoranir í rekstri. Námið er 100% fjarnám, hagnýtt frá fyrsta degi. Engar forkröfur eru í námið en það fer yfir allt sem stjórnandi og millistjórnandi þarf að þekkja til.

Næsti hópur fer af stað 4. október 2026.

Útskriftarnemendur í ár voru þau Ásta Júlía Ingibjörnsdóttir, Birgir Kristján Guðmundsson, Bjarni Þór Gústafsson, Bjarni Freyr Guðmundsson, Dagný Ösp Oddsdóttir, Edda Hrund Guðmundsdóttir, Elísa Berglind Sigurjónsdóttir, Guðfinnur Örn Magnússon, Hanna Kristín Gunnarsdóttir, Hörður Elís Finnbogason, Ingunn María Haraldsdóttir, Jóhann Þorsteinsson, Jóhann Jónsson, Lilja Vattnes, Lúðvík Þorsteinsson, Runólfur Helgi Jónasson, Steinar Oddsson, Þórólfur Jón Ingólfsson og Þröstur Reynisson.

Við óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann og þökkum þeim fyrir ánægjulegt samstarf. Við hlökkum til að fylgjast með þeim nýta þekkinguna og færnina í sínum störfum og verkefnum á komandi misserum. 🎓✨

Bjarni Þór Gústafsson nemandi í náminu sem og forseti Sambands Stjórnendafélaga sem er bakhjarl námsins sagði mikið til námsins koma, það væri frábært, vel uppbyggt og mjög yfirgripsmikið.

Bjarni Þór Gústafsson forseti STF og nemandi í náminu
Bjarni Þór Gústafsson forseti STF og nemandi í náminu

"Það sem stendur upp úr hjá mér er hversu praktískt og raunhæft námið er. Þetta er ekki bara fræðilegt nám, heldur nám sem fær mann til að hugsa um eigið hlutverk, eigin starfshætti og þau verkefni sem stjórnendur standa frammi fyrir á hverjum degi. Fræðin eru sett í samhengi við raunveruleikann og það gerir námið bæði gagnlegt og lifandi.

Námið hefur verið krefjandi, en um leið einstaklega gefandi. Það hefur ýtt við nýrri hugsun, aukið sjálfstraust og gefið manni betri verkfæri til að takast á við fjölbreytt verkefni stjórnenda. Ég tek mikið með mér úr þessu námi, bæði faglega og persónulega."

Bjarni talaði einnig um hversu dýrmætt það er að fá að kynnast öflugu fólki víða að af landinu, deila reynslu og sjá hversu margt þau eiga sameiginlegt þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og ólík störf. "Fyrir mér er Stjórnendanámið mjög mikilvægt framlag til þess að efla stjórnendur á íslenskum vinnumarkaði og ég er virkilega stoltur og þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í því.“ sagði Bjarni Þór.

Hörður Elís Finnbogason talað fyrir hönd nemenda og talaði fallega um námið, hversu mikið sveigjanleikinn í náminu hjálpi enda eru allir nemendur í fullri vinnu og þá er sveigjanleikinn mjög mikilvægur.

"Kennararnir eiga líka mikið hrós skilið. Flestir þeirra voru bæði skemmtilegir og metnaðarfullir. Þeir náðu að gera stjórnun að einhverju sem var ekki bara fræðilegt viðfangsefni heldur líka hagnýtt og áhugavert. Það er ekki sjálfgefið."

Hörður sló líka á létta strengi og uppskar mikinn hlátur viðstaddra:

"Eftir að hafa eytt öllum þessum tíma í að læra stjórnun, stefnumótun, skipulagsheildir, um hagsmunaaðila, leiðtogafræði og breytingastjórnun, þá er ég í dag farinn að vinna sem tækjamaður og skóflutittur hjá verktakafyrirtæki.

Hörður Elís Finnbogason talaði fyrir hönd nemenda
Hörður Elís Finnbogason talaði fyrir hönd nemenda

Ég er sem sagt með nýtt próf í stjórnun en eyði dögunum í að færa mold úr einum stað yfir á annan.

En ef námið hefur kennt mér eitthvað, þá er það að þetta kallast ekki að færa mold. Þetta kallast að hámarka staðsetningu auðlinda með markvissri tilfærslu innan skilgreinds verkefnasvæðis."

Fleiri aðilar tóku til máls, Steinunn Ketilsdóttir talaði fyrir hönd kennara og flutti, eins og oft áður, stórskemmtilega ræðu með hjálp gervigreindar. Erna Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri STF óskaði nemendum til hamingju með árangurinn og Stefán Guðnason forstöðumaður SMHA fór stuttlega yfir sögu námsins og hversu óþolandi stolt við hjá Símenntun HA og Menntunarsjóði STF og SA erum af inntaki námsins. Þetta nám er ekki eins og önnur nám. Hér geta allir lært að verða góðir eða enn betri stjórnendur, það þarf ekki neina forgráðu til að komast inn og öll eru á jafningja grundvelli í náminu. Kennarar eru 25 talsins, koma frá ólíkum störfum og stöðum en öll sérfræðingar á sínu sviði og erum við einstaklega stolt af því að hafa þennan frábæra mannauð sem kemur að náminu.

Stjórnendanámið er ætlað þeim sem vilja efla leiðtogafærni sína, styrkja sig í stjórnun og öðlast hagnýt verkfæri til að leiða fólk og verkefni af öryggi og fagmennsku. Útskriftarhópurinn hefur lagt á sig metnaðarfulla vinnu á námsleiðinni og má vera stoltur af þeim árangri sem náðst hefur.

Við hlökkum til að taka á móti nýjum hóp í byrjun október en skráning í námið er hafin og má finna nánari upplýsingar um loturnar og námið í heild sinni HÉR.