fbpx

Starfshelgun og starfsmótun í forgrunni – vel heppnuð vinnustofa og nýtt fjarnámskeið eftir áramót

Þann 10. október síðastliðinn fengum við einstaklega góðan gest þegar Sigrún Þorgeirsdóttir heimsótti okkur og hélt fróðlega og hvetjandi vinnustofu um starfshelgun. Þar var fjallað um hvernig starfsfólk getur aukið hamingju sína í starfi og nýtt fjölbreytt verkfæri til að verða bæði afkastameira og ánægðara í vinnunni.

Þátttakendur voru starfsmenn Símenntunar HA, Rannsóknamiðstöðvar HA og Miðstöðvar skólaþróunar HA.

Sigrún leiðbeindi af mikilli fagmennsku og innsýn og hlutu þátttakendur dýrmæt verkfæri til að efla sig í starfi, auka tengingu við verkefnin sín og rækta eigin vellíðan í vinnu. Áhersla var lögð á hagnýtar aðferðir sem auðvelt er að innleiða strax í daglegu starfi.

"Vinnustofan var bæði gagnleg og einstaklega fræðandi. Þetta mun sannarlega nýtast vel í mínu starfi." sagði Dana Rán Jónsdóttir eftir námskeiðið.

Nýtt fjarnámskeið hefst eftir áramót

Eftir áramót höldum við áfram að efla vellíðan á vinnustöðum með nýju námskeiði um starfsmótun (e. Job Crafting). Starfsmótun er markviss og rannsóknum studd leið til að hjálpa fólki að móta eigið starf á þann hátt sem eykur ánægju, dregur úr kulnun og styrkir virka helgun í starfi.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja:

  • Rýna í eigin störf og móta þau út frá áhugasviði og styrkleikum

  • Efla vellíðan og árangur í starfi

  • Skilja betur hvaða þættir í starfsumhverfinu styðja við starfsánægju

  • Læra hvað einstaklingar geta sjálfir gert til að hlúa að eigin líðan í vinnu

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað felst í vellíðan í starfi og hvað dregur úr henni

  • Hvernig draga má úr líkum á kulnun

  • Mikilvægi stuðnings, samskipta og skýrleika í ábyrgð

  • Hvernig frelsi til athafna getur aukið bæði sköpun og ánægju

  • Fjölmörg raun­dæmi um hvernig fólk hefur mótað störf sín til hins betra

Raun­dæmin byggja m.a. á meistararitgerð námskeiðshaldara, þar sem rætt var við tíu sérfræðinga sem njóta sín vel í starfi og deila hagnýtum leiðum sínum til að skapa góðar starfsaðstæður.

Uppbygging námskeiðsins

Heildarálag: um 2 klst. á viku

  • Fræðslufyrirlestrar: allt að 1 klst.

  • Sameiginlegur fundur á Zoom: 1 klst.

  • Dagbókarskrif: um 10 mínútur á dag

Námskeiðið fer fram í fjarkennslu og hentar því vel bæði einstaklingum og vinnustöðum sem vilja styðja við starfsþróun á sveigjanlegan hátt.

Námskeiðið hefst 10. febrúar, skráning og  nánari upplýsingar eru HÉR

Sigrún Þorgeirsdóttir

er viðskiptafræðingur að mennt, hún hefur einnig lokið námi í hótelstjórnun og verkefnastjórnun. Nýverið lauk hún meistaranámi við Háskóla Íslands þar sem hún gerði lokaverkefni um vellíðan í starfi og starfsmótun. Þar hún tók viðtöl við 10 háskólamenntaða sérfræðinga, sem allir njóta sín í starfi, til að rannsaka hvað það er sem styður við vellíðan þeirra í starfi og starfsmótun.

Sigrún hefur unnið ýmist sem verkefnastjóri og stjórnandi, síðast sem rekstrarstjóri hjá Heilsuborg og þar áður sem hótelstjóri á Hótel Holti. Hún hefur brennandi áhuga öllu sem snýr að því að njóta sín í starfi og finnst ekkert meira spennandi að leita leiða til að létta fólki lífið í vinnunni!