Rannsóknarvinnu lokið, hegðun nemenda kortlögð
Símenntun Háskólans á Akureyri hefur, í samstarfi við evrópska samstarfsaðila, lokið fyrsta rannsóknarfasa alþjóðlega verkefnisins ET CASE. Verkefnið miðar að því að efla skilning á sjálfbærri neyslu og hringrásarhagkerfi meðal ungs fólks og þróa árangursríkar kennsluaðferðir á því sviði.
Í þessum fyrsta áfanga var sérstök áhersla lögð á að kortleggja hegðun, viðhorf og þekkingu framhaldsskólanema í tengslum við sjálfbærni. Milli jóla og nýárs tók hópur nemenda þátt í tilraun þar sem notast var við spurningakannanir samhliða fræðslu. Rannsóknarvinnan gekk vel, markmið hennar er að fá dýpri innsýn í hvernig þekking og umræða hefur áhrif á viðhorf og ákvarðanatöku. Þessi nálgun gerði rannsóknarteyminu kleift að fá sem heildstæðasta mynd af því hvernig nemendur hugsa um neysluvenjur, umhverfisábyrgð og áhrif eigin hegðunar.
Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvað hvetur ungt fólk til sjálfbærari hegðunar, hvaða hindranir standa í vegi fyrir breytingum og hvaða nálganir í kennslu geta haft mest áhrif. Þessi þekking er lykilatriði í áframhaldandi þróun verkefnisins.
Í næsta fasa verður unnið að því að nýta niðurstöðurnar til að hanna og prófa nýjar kennsluaðferðir og námsefni sem höfða betur til nemenda og styðja við virkari þátttöku þeirra í átt að sjálfbærari framtíð.
Verkefnið er hluti af auknu alþjóðlegu samstarfi á sviði menntunar og sjálfbærni og undirstrikar mikilvægi þess að tengja rannsóknir, kennslu og samfélagslega ábyrgð.
