fbpx

Prentun námsgagna Við stefnum á minni pappírssóun

Símenntun HA vinnur að minnkun útprentunar á námsgögnum til samræmis umhverfisstefnu skólans sem státar af góðu flokkunarkerfi á úrgangi, hvata til umhverfisvænna samgangna og grænfána.
Þátttakendum á námskeiðum býðst að fá send námsgögn rafrænt og koma með fartölvur. Næsta haust munum við svo taka upp sérstakt gjald fyrir fjölföldun á námsgögnum.