-
Námsskeiðs gjald
kr 1.650.000
Yfirlit
📌 Ertu að leita að leiðum til að dýpka þekkingu þína og færni í verkfræði?
Símenntun HA býður nú upp á Meistaranám í verkfræði í 100% fjarnámi í samstarfi við University of the Highlands and Islands (UHI) í Skotlandi.
Námið er vottað af QAA (The Quality Assurance Agency for Higher Education) í Bretlandi og er sett upp sem 100% fjarnám frá grunni. Hægt er að velja á milli þess að taka námið í fullu námi (e. Full time) eða að hluta til (e. Part-time).
Námið, sem spannar þrjú misseri eða lengur (ef valið er part-time nám), fer alfarið fram á netinu og er sett upp frá grunni sem fjarnám fyrir vinnandi fólk. Allir nemendur í náminu eru í fjarnámi og hittast á fjarfundum (sem eru þó valkvæðir). Fjarfundirnir eru utan hefðbundins vinnutíma og flest öll verkefni einstaklingsverkefni svo þú vinnur á þínum tíma, óháður öðrum nemendum.
UHI er framsýnn háskóli sem er staðsettur á nokkrum stöðum í Skotlandi, nýtir sérstöðu sína í að bjóða ferska nálgun á háskólanám, allt frá grunnnámi upp í Phd gráður. Símenntun HA hefur frá árinu 2020 verið í samstarfi við skólann um meistaranám í MBA, mannauðsstjórnun og leiðtogafærni í heilbrigðisþjónustu.
Í náminu njóta nemendur tæknilegrar aðstoðar Símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt almennri handleiðslu þegar við á.
Þar sem námið er alfarið í höndum Unviersity of Higlands and Islands fer kennslan fram á ensku.
Í október ár hvert er útskriftarhátíð og gefst þeim nemendum sem hafa lokið náminu kostur á að fara til Perth í Skotlandi og taka þátt í henni.
Námið er lánshæft hjá Menntasjóði íslenskra námsmanna og er einnig niðurgreitt af öllum starfsmenntasjóðum landsins.
Hagnýtar upplýsingar
M.Sc. í Verkfræði (Almenn) – Sveigjanlegt og framsækið meistaranám
Meistaranámið í almennri verkfræði (M.Sc.) veitir þér alhliða skilning á hlutverki rannsókna, hönnunar, greiningar og bestunar í háþróuðum verkfræðistörfum. Þú munt öðlast þekkingu og færni til að nýta bæði hefðbundna og nýja tækni í þróun, framleiðslu, hönnun og rekstri verkfræðilegra lausna.
💡 Sérhæfing þín – þín leið
Þú getur sérsniðið námið að þínum áhugamálum með því að velja sérhæfðar námskeið innan ýmissa verkfræðigreina, þar á meðal vélaverkfræði, rafmagnsverkfræði og byggingarverkfræði.
✅ Af hverju að velja þetta nám?
✔️ 100% fjarnám – Vertu á þínum hraða, lærðu hvar og hvenær sem er
✔️ Alhliða þekking í nútíma verkfræði og nýjustu tækni
✔️ Miklir starfsmöguleikar – Undirbýr þig fyrir fjölbreytt verkfræðistörf á alþjóðlegum markaði
✔️ Fagleg viðurkenning – Námið er vottað af Institution of Engineering and Technology (IET) og uppfyllir hluta af skilyrðum fyrir skráningu sem Chartered Engineer (CEng) í Bretlandi
✔️ Sveigjanleiki í námi – Þú getur tekið einstök námskeið, unnið að PgCert, PgDip eða lokið fullu meistaranámi
Skráðu þig í dag og fáðu alhliða og hagnýta verkfræðimenntun sem býr þig undir framtíðina!
Fyrirkomulag fjarnáms
Við vitum að sveigjanleiki er mikilvægur, sérstaklega þegar það er tekið með vinnu. Þess vegna er hægt að stjórna sinni ferð, velja hvaða hraða maður vill vera á.
- Námið er í 100% fjarnámi
- Verkefni eru alla jafna einstaklingsverkefni (getur verið breyting á milli ára og áfanga)
- Engin skyldumæting á fundi (mælum þó með mætingu á fundina)
- Rafrænir fundir eru almennt utan hefðbundins vinnutíma
- Engin hópaverkefni sem gilda til einkunnar (getur verið breytilegt á milli ára)
- Engin próf (getur verið breytilegt á milli ára)
Fullt nám (e. Full time) spannar 3 annir og eru þá teknir þrír áfangar á fyrstu og annarri önn, á þriðju önn er meistararitgerðin unnin.
Hlutanám (e. Part-time) getur spannað mörg ár. Þú velur hvort þú vilt taka 1 eða 2 áfanga á hverri önn. Þegar 6 áföngum er lokið þá er hægt að byrja á ritgerðarsmíðinni og annað hvort taka hana á einni önn eða tveim önnum. Sem sagt, mikill sveigjanleiki í boði.
Efnisskrá
Áfangarnir:
- Design optimisation
- Design process and engineering project management
- Quantitative research methods and data analysis
- Master research project (ígildi þriggja áfanga)
- To achieve the award of MSc you must successfully complete a research project/dissertation. This may be coordinated and conducted in conjunction with your employer in an area of specialisation within the field of mechanical, electrical or civil engineering.
Valáfangar (þú velur 3 af þessum):
- Advanced analogue electronics
- Advanced applications in engineering
- Advanced engineering maths and modelling
- Advanced mechanical engineering
- Artificial neural networks and evolutionary algorithms
- Renewable energy technologies
- Safety case studies
- Tidal, wave and future energy
Inntökuskilyrði
Grunngráða á háskólastigi (180 ECTS einingar).
Mat umsókna fer eftir árangri í fyrra námi og störfum eftir útskrift.
Dagskrá
UHI tekur inn nemendur í námið í janúar og september ár hvert.
Haustönn hefst 1. september 2025 og verður opið fyrir umsóknir til 31. júlí 2025.
Planning
Með því að ýta á "Skráning" hér á síðunni er aðeins verið að hefja umsóknarferlið og því ekki valið þar hversu marga áfanga ætlunin er að taka. Starfsmenn Símenntunar HA hafa í framhaldinu samband við umsækjendur með upplýsingum um næstu skref.
Mat umsókna fer eftir árangri í fyrra námi og störfum eftir útskrift.
Ferli umsóknar er:
- Skrá sig hér hjá Símenntun HA
- Senda ferilskrá/grunngráðu skírteini til SMHA
- Sækja um formlega til UHI
Kostnaður
Hægt er að velja á milli þess að greiða fyrir allt námið í upphafi og fá þá lægra heildarverð, eða greiða fyrir staka áfanga jafnóðum sem þeir eru teknir.
Full meistaragráða kostar 1.800.000 kr en 1.650.000 kr ef greitt er fyrir námið fyrirfram. ATH að skoða greiðsluskilmála vel.
Ef kosið er að greiða fyrir staka áfanga þá er verð á hvern áfanga kr. 200.000*. Samtals verð ef greitt er fyrir staka áfanga er 1.800.000 kr. (ATH að námið eru 6 áfangar og ritgerðin er skilgreind sem jafngildi þriggja áfanga og greitt þá fyrir hana eins og um þrjá áfanga væri að ræða).
Við skráningu hér á síðunni er aðeins full-time nám í boði en þau sem ætla part-time skrá sig einnig hér og setja í athugasemd að ætlunin sé að fara í part-time nám. Við verðum svo í sambandi með nánari upplýsingar um umsóknarferlið.
Námið er lánshæft hjá Menntasjóði íslenskra námsmanna og er einnig niðurgreitt af öllum starfsmenntasjóðum landsins.
Óafturkræft staðfestingargjald er kr. 75.000. Greiðsluseðill verður sendur út þegar skráning er staðfest af Símenntun HA. Staðfestingargjald fæst þó endurgreitt ef kemur í ljós að umsækjandi stenst ekki inntökuskilyrði né kemst inn í námið á undanþágu.
Ekki skal greiða námsgjöldin við skráningu, heldur velja að greiða með greiðsluseðli. Þegar kemur að því að borga fyrir námið verður haft samband við nemendur. Hægt er að skipta allt að kr. 900.000 á greiðslukort í gegnum kortalán Valitor í allt að 36 mánuði sé þess óskað.
Endilega hafið samband við okkur í síma 460-8090 eða á netfangið smha@smha.is ef einhverjar spurningar vakna um greiðslufyrirkomulag eða annað.
* = Verð byggir á GBP gengi og getur því tekið breytingum.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða