-
Tímalengd
12 vikurNámsskeiðs gjald
kr 425.000
Yfirlit
Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni „verkefna“, markmið með þeim og aðferðir til að auðvelda vinnu við þau með áherslu á alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun sem er sniðið að þörfum markaðarins, þeir sem vilja auka við þekkingu sína, leikni og hæfni á því sviði. Lögð er áhersla á eftirfarandi greinar innan verkefnastjórnunar
- Inngangur að verkefnastjórnun
- LEAN, straumlínustjórnun
- Alþjóðleg vottun verkefnastjóra, IPMA
Náminu lýkur með því að nemendur undirgangast alþjóðlegt próf í D-vottun í verkefnastjórnun.
Sérstaða námsins felst í námskeiðum sem nýtast þeim sem vilja ná betri árangri við að leiða og stýra hinum ýmsu verkefnum og gera betur í dag en í gær. Nemendur vinna einstaklingsverkefni en vinna jafnframt saman í teymum til að öðlast færni í lausn vandamála, stjórnun og að verkstýra verkefnum. Nemandi öðlast góðan undirbúning fyrir alþjóðlega vottun verkefnastjóra (IPMA).
Námið er hagnýtt og sveigjanlegt nám fyrir alla sem hafa vilja til að efla færni sína í verkefnastjórnun. Við viljum vinna með þér. Námið er byggt upp fyrir fólk í vinnu, þar af leiðandi aðlögum við okkar verkefni að þér og þínum vinnustað. Með því færðu strax innsýn í hvernig hægt er að nýta inntak námsins á þínum vinnustað.
Hagnýtar upplýsingar
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 20. janúar. Námið er ígildi 6 ECTS eininga á háskólastigi.
Fyrirkomulag fjarnáms
100% fjarnám. Eina sem þú þarft er virk nettenging og vilji til að verða betri í verkefnastjórnun sem starfsmaður og/eða stjórnandi. Upptökur af námskeiðinu liggja fyrir fyrir Zoom tímann. Nemendur hitta kennara og samnemendur einu sinni í viku í gegnum netið. Að öðru leyti ræður þú þér alveg sjálf/ur.
- Kennslan fer fram á netinu og er vikulegur hittingur á þriðjudögum kl. 20:00–21:30 í gegnum Zoom.
- Fyrir hvern tíma liggja fyrir hljóðfyrirlestrar sem eru u.þ.b. 1,5–2 klukkustundir að lengd.
- Nemendur vinna í hópverkefnum sem byggja á námsefni fyrir D-vottun. Hópverkefnum er skilað inn einu sinni í viku og þau byggja á því efni sem IPMA leggur upp með. Flest verkefnin tengja nemendur við þá vinnu sem þeir eru að sinna í starfi eða geta nýtt sér í vinnunni.
- Almennt má gera ráð fyrir að fara í 2–3 klukkustundir í verkefnavinnu og undirbúning á viku, en erfitt er þó að leggja nákvæmt mat á tímann sem hver og einn notar í námið þar sem hann er einstaklingsbundinn.
- Náminu lýkur með alþjóðlegu prófi í verkefnastjórnun. Meðaleinkunn nemenda hefur verið um 8,5 sem telst frábær árangur.
- Það er engin staðarlota, en nemendur geta alltaf fengið aðstoð eða skýringar hjá kennarar námskeiðsins utan hefðbundins tíma á þriðjudögum.
Efnisskrá
Hæfniviðmið:
Þekking; í því felst að nemandi þekki
- helstu kenningar, hugtök og aðferðir í verkefna- og straumlínustjórnun
- ferla áætlanagerðar á sviði verkefna- og straumlínustjórnunar
- verkfærakistu í verkefna- og straumlínustjórnun
Leikni; er fólgin í að nemendur geti:
- framkvæmt algengar greiningar
- unnið að ýmsum lausnum tengdum fræðunum
Hæfni; er fólgin í getu nemenda til að:
- leggja mat á algengar aðgerðir í verkefna- og straumlínustjórnun
- framkvæma greiningu innan verkefna- og straumlínustjórnunar
Innifalið í verði:
- GRAY, CLIFFORD F. & LARSON, ERIK W.: Project Management, The Managerial Process (McGraw-Hill, 2020, 8 ed.).
- Verkefnastjórnun með MS Project, 2025, eftir Eðvald Möller
- Aðgangur að Project forritinu á meðan á námskeiði stendur
Inntökuskilyrði
Það eru engin inntökuskilyrði. Eina sem þarf er virk nettenging og áhugi á verkefnastjórnun.
Dagskrá
Námskeiðið er frá: 20. janúar til 21. apríl 2026.
Umræðutímar á þriðjudögum, vikulega kl. 20:00-21:30
Kennarar
Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.
Kostnaður
Verð námskeiðsins er 425.000 kr, innifalið eru bækur og aðgangur að Project forritinu á meðan á námskeiði stendur.
Semja má um greiðslufyrirkomulag áður en námið hefst ef það er ekki greitt í heild sinni. Skipta má greiðslum í tvennt í upphafi misseris án auka kostnaðar. Einnig er hægt að greiða námið með raðgreiðslu Valitors í allt að 36 mánuði.
Óafturkræft staðfestingargjald kr. 75.000,- er innheimt við skráningu nema námsgjaldið sé þegar greitt að fullu.
Ath. að ekki er hægt að fá námsgjald endurgreitt eða fellt niður eftir að gengið hefur verið frá greiðslufyrirkomulagi.
Við hvetjum áhugasama um að skoða rétt á námsstyrk hjá sínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun. Hægt er að nálgast PDF skjal hér.
Umsagnir um námskeið
Pétur Kristinn Pétursson, Manager Production, Icelandair:
"Ég valdi að fara í nám í verkefnastjórnun hjá Símenntun Háskólans á Akureyri vegna þess að hluti af mínu starfi snýr að verkefnastjórnun. Þetta reyndist vera góð leið til að bæta við mig hagnýtri þekkingu og styrkti mig enn frekar á því sviði.
Námskeiðið var ítarlegt og veitti mér góða innsýn í helstu þætti verkefnastjórnunar með hliðsjón af mismunandi aðstæðum, hagsmunaaðilum og stefnumótun. Ég lærði meðal annars að meta forsendur þess að hefja verkefni, skipuleggja og fylgja eftir framkvæmd verkefnis, hvernig verkefni eru formlega kláruð og hversu mikilvægt er að fylgja eftir til að tryggja að árangurinn haldist til lengri tíma.
Í mínu daglega starfi sem deildarstjóri flugvélaviðhalds hjá Icelandair, þar sem öryggi og fagmennska eru í forgrunni, hef ég nýtt þessa þekkingu til að taka markvissari ákvarðanir um forgangsröðun verkefna og tryggja að þau séu unnin á skilvirkan og faglegan hátt frá upphafi til enda."
Tinna Berglind Guðmundsdóttir:
"Námskeiðið var bæði fræðandi og gaf góða innsýn í verkefnastjórn. Það var vel skipulagt, með skýrum áherslum og góðu jafnvægi milli fyrirlestra, umræðna og verkefnavinnu. Fjarnámið var sveigjanlegt og auðvelt að samræma með vinnu og fjölskyldulífi. Þátttakan í vikulegum fundum styrkti tengsl við kennara sem voru einstaklega liðlegir þegar á þurfti að halda milli funda.
Nemendur unnu saman að ýmsum verkefnum í hópum og lærðu að nýta styrk hvors annars – sem er mikilvægt í öllum verkefnum.
Ég fékk dýpri innsýn í verkefnastjórn, áætlanagerð, greiningar og framkvæmd verkefna með aðferðum verkefna- og straumlínustjórnunar (LEAN). Ég lærði að beita verkfærum eins og MS Project og undirbúningurinn fyrir IPMA D-vottunina var mjög góður. Aukin þekking á verkefnaferlum og verklagi er það sem nýtist mér hvað mest í starfi eftir námskeiðið.
Þetta hefur hjálpað mér að halda betur utan um verkefnin í vinnunni. Ég hugsa meira út í ferla og forgangsröðun og er orðin mun meðvitaðri um hvernig hægt er að gera hlutina einfaldari og skilvirkari. Ég nota verkfærin úr náminu beint í daglegum verkefnum – bæði fyrir sjálfa mig og þegar ég er að vinna með öðrum.
Ég mæli eindregið með námskeiðinu Verkefnastjórn með vottun."
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða