fbpx

Verkefnastjórnun með vottun

- Stjórnun og færni

Yfirlit

 

Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni „verkefna“, markmið með þeim og aðferðir til að auðvelda vinnu við þau með áherslu á alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun sem er sniðið að þörfum markaðarins, þeir sem vilja auka við þekkingu sína, leikni og hæfni á því sviði. Lögð er áhersla á eftirfarandi greinar innan verkefnastjórnunar

  • Inngangur að verkefnastjórnun
  • LEAN, straumlínustjórnun
  • Alþjóðleg vottun verkefnastjóra, IPMA

 

Náminu lýkur með því að nemendur undirgangast alþjóðlegt próf í D-vottun í verkefnastjórnun.

 

Sérstaða námsins felst í námskeiðum sem nýtast þeim sem vilja ná betri árangri við að leiða og stýra hinum ýmsu verkefnum og gera betur í dag en í gær. Nemendur vinna einstaklingsverkefni en vinna jafnframt saman í teymum til að öðlast færni í lausn vandamála, stjórnun og að verkstýra verkefnum. Nemandi öðlast góðan undirbúning fyrir alþjóðlega vottun verkefnastjóra (IPMA).

Námið er hagnýtt og sveigjanlegt nám fyrir alla sem hafa vilja til að efla færni sína í verkefnastjórnun. Við viljum vinna með þér. Námið er byggt upp fyrir fólk í vinnu, þar af leiðandi aðlögum við okkar verkefni að þér og þínum vinnustað. Með því færðu strax innsýn í hvernig hægt er að nýta inntak námsins á þínum vinnustað.

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið hefst 16. janúar 2025 en skráningarfrestur er til 20. desember 2024.

Fyrirkomulag fjarnáms

100% fjarnám. Eina sem þú þarft er virk nettenging og vilji til að verða betri í verkefnastjórnun sem starfsmaður og stjórnandi. Upptökur af námskeiðinu liggja fyrir fyrir Zoom tímann. Nemendur hitta kennara og samnemendur einu sinni í viku í gegnum netið. Að öðru leyti ræður þú þér alveg sjálf/ur.

Efnisskrá

Hæfniviðmið:

Þekking; í því felst að nemandi þekki

  • helstu kenningar, hugtök og aðferðir í verkefna-  og straumlínustjórnun
  • ferla áætlanagerðar á sviði verkefna- og straumlínustjórnunar
  • verkfærakistu í verkefna-  og straumlínustjórnun

Leikni; er fólgin í að nemendur geti:

  • framkvæmt algengar greiningar
  • unnið að ýmsum lausnum tengdum fræðunum

Hæfni; er fólgin í getu nemenda til að:

  • leggja mat á algengar aðgerðir í verkefna- og straumlínustjórnun
  • framkvæma greiningu innan verkefna- og straumlínustjórnunar

 

Kennslubækur eru innifaldar í þessum hluta námskeiðsins:

  • GRAY, CLIFFORD F. & LARSON, ERIK W.: Project Management, The Managerial Process (McGraw-Hill, 2020, 8 ed.).
  • Verkefnastjórnun með MS Project, 2020, eftir Eðvald Möller
  • Spotify (hljóðbækur)

 

Inntökuskilyrði

Það eru engin inntökuskilyrði. Eina sem þarf er virk nettenging og áhugi á verkefnastjórnun.

Dagskrá

Námskeiðið er frá: 16. janúar – 4. apríl, 2025

Umræðutímar á þriðjudögum, vikulega kl. 20:00-21:00

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Semja má um greiðslufyrirkomulag áður en námið hefst ef það er ekki greitt í heild sinni. Skipta má greiðslum í tvennt í upphafi misseris án auka kostnaðar. Einnig er hægt að greiða námið með raðgreiðslu Valitors í allt að 36 mánuði.

Óafturkræft staðfestingargjald kr. 75.000,- er innheimt við skráningu nema námsgjaldið sé þegar greitt að fullu. 

Ath. að ekki er hægt að fá námsgjald endurgreitt eða fellt niður eftir að gengið hefur verið frá greiðslufyrirkomulagi.

Við hvetjum áhugasama um að skoða rétt á námsstyrk hjá sínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun.

Upphafsdagur
Upphafsdagur16 Jan 25
TímalengdSímenntun
Verðkr 395.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða