-
Námsskeiðs gjald
kr 15.000
Yfirlit
Undirbúningsnámskeið í fræðilegri ritun fyrir nýja háskólanemendur hefst 18. ágúst 2026.
Hagnýtar upplýsingar
Farið verður yfir atriði eins og málsnið, orðfæri, flæði og samhengi, hugtakanotkun, samþættingu texta og heimilda og grunnatriði varðandi meðferð og utanumhald heimilda og tilvísana.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið fer allt fram á kennsluvefnum Canvas. Nemendur hafa aðgang að kennara á meðan á námskeiðinu stendur.
Námskeiðið er skipulagt í fimm þemum/fyrirlestrum sem miðast við fimm daga vinnu. Miðað er við að þátttakendur fari yfir eitt þema á dag.
Að auki verður einn fjarfundur þar sem nemendur geta spurt kennarann nánar út í námsefnið.
Efnisskrá
Lesefni: Efni frá kennara.
Námsmat: Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða.
Dagskrá
Í boði verður Zoom fundur með kennara þar sem hægt er að ræða málin og spyrja spurninga. Nákvæm tímasetning verður gefin út þegar nær dregur.
Kennarar
Kostnaður
Krafa verður send í heimabanka sem greiðist fyrir upphaf námskeiðs ef ekki er greitt með kreditkorti við skráningu.
Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða