fbpx

Tilfinningagreind stjórnenda og áhrif þeirrar greindar

- 100% fjarnám

Yfirlit

Mannauðurinn er grunnur allra fyrirtækja, sá sem stýrir liðsheildinni er sá sem leiðir hópinn. Stjórnandi sem býr yfir sterkri EQ (tilfinningagreind) nær að samstilla liðsheild, hvetja starfsmenn, stilla jafnvægi og veita stuðning. Sá stjórnandi getur lesið vel í starfsfólk sitt, og endurspeglað þeirra líðan. Þar af leiðandi brugðist við (snemmt inngrip), ef einhver starfsmannamál koma upp. 

Hagnýtar upplýsingar

Byrjað er á að stjórnandi fari yfir hvaða eiginleikum hann/hún býr yfir. Farið verður yfir styrkleika og veikleika. Styrkleikar verða nýttir til að byggja upp og vinna á veikleikum. Þetta felur í sér mikla sjálfsskoðun, til að sjá hvað viðkomandi geti gert betur til að verða góður stjórnandi. Farið er yfir álagsþætti, samskiptahæfni, nálgun í samskiptum, hæfni í að lesa í hópinn sinn. Í kjölfarið fá nemendur vinnubók til að nýta sér í stjórnun liðsheildar.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Þátttakendur fá aðgang að fyrirlestrum, fræðsluefni og vinnubók á kennsluvef. Á námskeiðinu fara fram tveir fjarfundir á Zoom þar sem efnið er rætt og rými gefið fyrir spurningar og samtal.

Efnisskrá

Fyrirkomulagið er að komandi nemendur fá senda könnun, sem snýr að þeirra speglun í eigin ímynd sem stjórnandi. Kennari tekur niðurstöður saman fyrir námskeið. Námskeiðið byrjar á fræðslu um tilfinningagreind og samskipti. Inn á milli þurfa nemendur að vinna verkefni, sem fela í sér sjálfsskoðun. Meiri fræðsla og vinnubók sem á að gagnast stjórnandanum. Ekkert próf og engin einkunn, bara hver og einn sem nýtir sér efnið fyrir sig og sína liðsheild. Markmiðið er að stjórnandi fái verkfæri sem hann/hún getur unnið með. 

Inntökuskilyrði

Engin inntökuskilyrði, áheyrnarnemendur eru velkomnir. 

Dagskrá

Námskeiðið opnar 27. apríl og er efnið opið á kennsluvef námskeiðsins til 8. maí. Fjarfundir fara fram þriðjudaginn 28. apríl og fimmtudaginn 30. apríl kl. 19:00 – 20:30.

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Verð 45.000 kr. 

Athugið að flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjald eða hluta þess.

Upphafsdagur
Upphafsdagur27 Apr 26
TímalengdSímenntun
Verðkr 45.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða