fbpx

Starfsmótun – árangursrík leið til að njóta sín í starfi!

- 100% fjarnám

Yfirlit

Starfsmótun (e. Job Crafting) er markviss leið til að auka eigin vellíðan og árangur í starfi. Rannsóknir um starfsmótun hafa ítrekað sýnt fram á jákvæð áhrif hennar á virka helgun í starfi (e. work engagement) sem jafnframt dregur úr líkum á kulnun í starfi. 

Námskeiðið hentar öllum sem eru opnir fyrir því að rýna í og móta eigin störf til auka eigin ánægju og árangur í starfi. Farið verður yfir helstu þætti í starfsumhverfinu sem styðja við vellíðan í starfi. Jafnframt er lögð áhersla á hvað það er sem einstaklingar geta sjálfir gert til að hlúa að eigin vellíðan í vinnu með því að móta eigin störf út frá áhugasviði sínu og styrkleikum í takt við markmið skipulagsheildar. 

Hagnýtar upplýsingar

Fjallað verður um hvað felst í vellíðan í starfi, hvað það er sem dregur úr vellíðan og eykur líkur á kulnun í starfi. Jafnframt er farið yfir mikilvægi stuðnings í starfi, góðra samskipta og í hverju það felst. Auk þessa er rætt um áhrif þess að hafa hafa skýra ábyrgð í starfi sem og frelsi til athafna um hvernig verkin eru unnin og útfærð. Sagt er frá fjölmörgum raundæmi um hvernig starfsfólk hefur mótað sín störf til að bæta eigin líðan í starfi. Dæmin eru m.a. frá frá viðmælendum í meistararitgerð leiðbeinanda en þar var rætt við 10 sérfræðinga, sem njóta sín í starfi, til að læra af þeim hvað það er í starfsumhverfinu og hvað þeir hafa sjálfir gert til að hlúa að eigin velferð í starfi.  

Áætlaður tími í námskeiðið er um 2 klst. á viku:

Fræðslufyrirlestrar - allt að 1 klst.

Sameiginlegur fundur á Zoom - 1 klst.

Dagbókarskrif - um 10 mín á dag

 

 

 

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur.  

Í upphafi hverrar viku fá nemendur aðgang að stuttum fræðslufyrirlestrum (allt að 1 klst. samtals). Upptökur eru aðgengilegar á kennsluvef og hægt að horfa á þær þegar hentar.

Einu sinni í viku fer fram sameiginlegur hittingur á Zoom (1 klst. hver fundur) þar sem efni fyrirlestranna er rætt og praktískar leiðir til starfsmótunar.

Meðfram náminu eru nemendur hvattir til að skrifa dagbókarfærslur um ,,hvernig er í vinnunni".

Í lok námskeiðs er boðið upp á vinnustofu þar sem nemendur fá tækifæri til að nýta sér það sem kennt var á námskeiðinu, að rýna markvisst í eigin störf og ákvarða næstu skref.  

Efnisskrá

Markmið er að námskeiðið sé bæði fræðandi og praktískt. Nemendur fá góðan fræðilegan grunn um hvað það er í starfsumhverfinu sem skiptir máli fyrir vellíðan starfsfólks. Jafnframt er settur fókus á þær leiðir sem starfsfólk getur nýtt sér til að auka eigin vellíðan og árangur í starfi. Notast er við  fjölmörg raunveruleg dæmi um leiðir sem starfsfólk hefur farið í þessum tilgangi, til að dýpka umræður og styðja nemendur í að nýta sér markvisst það sem fram kemur á námskeiðinu. 

Nemendur fá góða innsýn í fræðin um vellíðan í starfi (e. well-being at work) og starfsmótun (e. job crafting) sem felur í sér allt það sem starfsfólk gerir til að efla eigin vellíðan í starfi. Út frá fræðum starfsmótunar samanstanda störf af tvennu; samskiptum á vinnustað og þeim verkum (e. tasks) sem viðkomandi sinnir. Með starfsmótun breytir starfsfólk meðvitað, annars vegar viðhorfum sínum til verka og samskipta, og hins vegar hvernig það vinnur verkin, á í samskiptum og myndar tengsl á vinnustað. 

Dagskrá

Námskeiðið hefst 10. febrúar 2026 og stendur yfir í 3 vikur.

Zoom fundir með kennara eru haldnir á miðvikudögum kl. 20:00.

Dagsetningar Zoom funda:

11. febrúar

18. febrúar

25. febrúar

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Upphafsdagur
Upphafsdagur10 Feb 26
TímalengdSímenntun
Verðkr 59.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða