fbpx

Stafræn nærvera

- 100% fjarnám

  • Næsta námskeið hefst
    01 Jan 70
    Allir upphafsdagar
  • Tímalengd
    1 klst.
  • Námsskeiðs gjald
    kr 6.500
Yfirlit

Á námskeiðinu er fjallað um það hvernig við tryggjum sem best góða nærveru í fjarþjónustu við viðskiptavini. Hvaða áskoranir fylgja því að samskipti fari fram t.d. í myndsamtali eða símtali og jafnvel með spjallforritum eða tölvupóstum. Við skoðum það hverju þarf að huga að þegar við færum okkur í stafræna miðlun.

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum verkfæri sem þeir geta nýtt sér til að vera sem best til staðar fyrir sína viðskiptavini, sem sumir hverjir eiga erfitt með þessa leið samskipta og fyrir aðra er jafnvel alveg ný – að minnsta kosti í því umfangi og samhengi sem hún nú er.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið verður kennt í gegnum Zoom og fólk mætir á ákveðnum tíma í tölvunni til að taka þátt – tímar verða ekki teknir upp eða gerðir aðgengilegir eftirá. Eingöngu verður notast við Zoom en glærur verða svo sendar í tölvupósti á alla þátttakendur. Mikil áhersla er lögð á þátttöku allra í umræðum og fer kennslan fram með stuttum innlögnum frá kennara og umræðum þátttakenda.

Efnisskrá

Á námskeiðinu er fjallað um það hvernig tryggjum við sem best góða nærveru í fjarþjónustu við viðskiptavini. Hvaða áskoranir fylgja því að samskipti fari fram t.d. í myndsamtali eða símtali og jafnvel með spjallforritum eða tölvupóstum. Við skoðum það hverju þarf að huga að þegar við færum okkur í stafræna miðlun. Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum verkfæri sem þeir geta nýtt sér til að vera sem best til staðar fyrir sína viðskiptavini, sem sumir hverjir eiga erfitt með þessa leið samskipta og fyrir aðra er jafnvel alveg ný – að minnsta kosti í því umfangi og samhengi sem hún nú er.

Dagskrá

Námskeiðið er eitt skipti og stendur í 1 klst. Það verður kennt  kl 13:00 – 14:00 í gegnum Zoom.

Kennarar

Ingibjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi MA. Hefur lokið diplómanámi frá Bretlandi í ráðgjöf og meðferð með fjarþjónustu (online counselling and psychotherapy). Hún hefur langa reynslu af því að vinna með þolendum ofbeldis og aðstandendum þeirra meðal annars í Kvennaathvarfinu, Stígamótum og Aflinu á Akureyri. Ingibjörg hefur haldið sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur og stúlkur auk ýmis konar kennslu, bæði á sviði fjarþjónustu og um ofbeldi. Þá hefur hún haft með höndum ýmiss konar ráðgjöf fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Ingibjörg rekur félagsráðgjafarstofuna Hugrekki – ráðgjöf og fræðslu, þar sem boðin er samtalsmeðferð, öll almenn félagsráðgjöf og ýmis konar námskeið. Þá er Ingibjörg einnig frumkvöðull í því að bjóða samtalsmeðferð í fjarheilbrigðisþjónustu.

Námskeið kennt annars staðar:
General Certificate in Online Counselling & Psychotherapy: námskeið í Bretlandi fyrir fagaðila í ráðgjöf og meðferð. Nánari upplýsingar um það námskeið eru á www.acadtherapy.online
Hef auk þess haldið fjölda fyrirlestra fyrir starfsfólk skóla og stofnanna um ofbeldi gegn börnum og verið með ýmis konar sjálfstyrkingarnámskeið fyrir bæði konur og stelpur.

Kostnaður

Kostnaður: 6500kr. 

 

Ef þú vilt skrá þig á öll námskeiðin í einu, er veittur 20% afsláttur með því að skrá sig hér: https://simenntunha.is/namskeid/skraning-a-oll-namskeidin-hja-hugrekki/

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða