fbpx

Skyndihjálp 20 klst

- Leiðsögunám

Yfirlit

Vinnur þú við að leiðsegja ferðamönnum? Kanntu skyndihjálp? Það getur skipt sköpum þegar á reynir. Hér í Símenntun Háskólans á Akureyri ætlum við að bjóða upp á 20 klst námskeið í skyndihjálp sem er sniðið að þörfum þeirra sem starfa við ferðamennsku eða hafa gaman af ferðalögum utan alfaraleiðar þar sem langt getur verið í aðstoð.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fá fræðslu og þjálfun í grunnatriðum skyndihjálpar og hvernig bregðast skuli við þegar slys eða veikindi verða utan alfaraleiðar. Einnig munu þátttakendur fá innsýn í vinnubrögð Almannavarna ríkisins við hópslysum.

Skráningarfrestur er til 5. febrúar 2025.

Hagnýtar upplýsingar

Að loknu námskeiði fá nemendur skírteini gefið út af Rauða Kross Íslands upp á að hafa verið á 20 klst skyndihjálparnámskeiði og gildir skírteinið í tvö ár frá útgáfudegi. Efnið sem er kennt er efni frá Rauða Kross Íslands. En á þessu námskeiði munu nemendur gera fleiri æfingar en gert er á venjulegum námskeiðum. Þetta er ekki námskeið á vegum Slysavarnafélagsins en fyrir leiðsögumenn þá uppfyllir námskeiðið þau skilyrði. 

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er kennt að hluta til í fjarnámi í gegnum kennslukerfið Canvas en einnig á staðnum.

Í fjarnámi eru kenndar 7.5 klst með upptökum á fyrirlestrum og stuttum prófum. Í staðnámi eru kenndar 12.5 klukkstundir. Í staðnámi verða bæði fyrirlestrar og verklegar æfingar. Þátttakendur þurfa að vera búnir að fara yfir efnið í fjarnáminu áður en þeir mæta í staðnámið í mars.

Viku eftir staðarlotu taka nemendur rafrænt próf í skyndihjálp.

Efnisskrá

Að námskeiði loknu skulu þátttakendur geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem þeir hafa aflað sér á námskeiðinu til að:

  • geta metið aðstæður á slysstað og bregðast við þeim á viðeigandi hátt
  • veita skyndihjálp vegna bráðra sjúkdóma, dauðadás, slysa og/eða líkamlegra áverka
  • þekkja til starfsemi Almannavarna Ríkisins í hópslysum

Það er ekki hægt að koma inn í hluta námskeiðsins.

Inntökuskilyrði

Nemendur þurfa að vera orðnir 20 ára gamlir til að mega sitja þetta námskeið. Til að ljúka námskeiði þá þurfa þátttakendur að taka þátt í öllu námskeiðinu. Engar undantekningar eru gerðar á mætingaskyldu í staðnámið. Nemendur þurfa einnig að taka þátt í öllum æfingum og viku eftir staðarlotu taka nemendur rafrænt próf í skyndihjálp.

Dagskrá

Námskeið hefst 5. febrúar.

Námskeiðið er með blönduðu sniði, fjarnám og staðarnám. Námskeiðið hefst 5. febrúar með en þá opnar kennsluvefurinn með aðgangi að fyrirlestrum og verkefnum sem hægt er að vinna/horfa á hvenær sem er á tímabilinu 5. febrúar til 6. mars. Staðarnámið fer fram í Háskólanum á Akureyri og eru kennsludagar föstudaginn  6. mars  frá 8.00 – 16.30 og laugardaginn 7. mars frá  8.00 – 13.00. Námskeiðið í heild sinni er 20 klukkustundir.

Í fjarnámi eru kenndar 7.5 klst og í staðnámi eru kenndar 12.5 klukkstundir. Í staðnámi verða bæði fyrirlestrar og verklegar æfingar. Þátttakendur þurfa að vera búnir að fara yfir efnið í fjarnáminu áður en þeir mæta í staðnámið í mars.

Viku eftir staðarlotu taka nemendur rafrænt próf í skyndihjálp.

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Athugaðu að flest stéttafélög niðurgreiða slík námskeið, kannaðu rétt þinn.

Upphafsdagur
Upphafsdagur05 Feb 26
Tímalengd
Verðkr 34.900

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða