Sálræn áföll og ofbeldi
- ECTS námskeið í samvinnu við Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri
-
Námsskeiðs gjald
kr 130.000
Yfirlit
Meginviðfangsefni námskeiðsins er sálræn áföll og ofbeldi. Námskeiðið byggir á þverfaglegri nálgun á sviði heilbrigðisvísinda, félagsvísinda, menntavísinda og laga. Með því að samþætta þekkingu og reynslu fleiri fagstétta og vísindasviða öðlast nemendur innsýn í heildræna og þverfaglega þekkingu og nálgun. Áhersla er á forvarnir, einkenni, afleiðingar og meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir sálrænum áföllum og ofbeldi, með það að markmiði að efla einstaklinga á öllum sviðum.
Fjallað er um helstu skilgreiningar, forvarnir, einkenni sem geta komið fram og líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar og þær leiðir sem einstaklingar geta valið til úrvinnslu og meðferðar. Greiningar- og úrvinnsluferli eru skoðuð með gagnrýnu hugarfari og hlutverk fagfólks, skjólstæðinga og aðstandenda í því samhengi eru einnig skoðuð. Fjallað er um áhrif sálrænna áfalla og ofbeldis á samfélagið og leiðir sem stuðla að skilvirkari og árangursríkari þverfaglegri þjónustu.
Námskeiðið er fyrir alla sem vinna með fólki, hvort sem er í heilbrigðiskerfinu, löggæslu og dómskerfinu, félagskerfinu, menntamálum, í íþrótta og tómstundastarfi,
Hagnýtar upplýsingar
Námsmat í námskeiðinu er í formi verkefna. Hægt er að velja á milli þess að láta námskeiðið gilda sem 5 eða 10 ECTS, eða taka það sem áheyrnarnemandi og skila þá ekki verkefnum.
Fyrirkomulag fjarnáms
Kennt verður í lotum í HA, (sjá undir dagskrá), einnig kennt á zoom og upptökur.
Efnisskrá
Að námskeiði loknu skal nemi:
Geta gert grein fyrir einkennum og afleiðingum sálrænna áfalla og ofbeldis og hvaða meðferðarúrræði eru í boði.
Geta fjallað um skammtíma og langvinnar afleiðingar sálrænna áfalla og ofbeldis fyrir líkama, sál, félagslegt umhverfi og samfélagið í heild.
Kunna skil á einkennum áfallastreitu og þeim mismunandi aðferðum sem beitt er og leiðum sem notaðar eru til úrvinnslu og stuðla að virkri þátttöku einstaklingsins.
Þekkja helstu leiðir í þverfaglegri samvinnu mismunandi fagstétta frá sjónarhorni skjólstæðinga, fagfólks og samfélagsins.
Geta rætt hvaða áhrif og afleiðingar sálræn áföll og ofbeldi geta haft á heilsufar og líðan og hvert skal vísa einstaklingum með slíka reynslu til markvissrar úrvinnslu.
Þekkja helstu leiðir til forvarna og mikilvægi þeirra fyrir samfélagið í heild.
Inntökuskilyrði
Námskeiðið er kennt á meistarastigi í gegnum Háskólann á Akureyri. Til að fá námskeiðið metið til eininga þurfa nemendur að hafa lokið BS-, BA- eða BEd-gráðu frá viðurkenndum háskóla.
Nemendur geta þó einnig sótt námskeiðið sem áheyrnarnemendur án þess að hafa lokið háskólagráðu, en fá þá ekki einingar fyrir þátttöku.
Dagskrá
25. ágúst, stutt kynning á námskeiðinu í gegnum Zoom.
Lota 1 verður í september, öll á netinu.
Lota 2 verður í Háskólanum á Akureyri þann 27. október, kennt frá 08:10 - 17:00.
Lota 3 verður í Háskólanum á Akureyri þann 21. nóvember, kennt frá 08:10-17:00
Í boði verður að taka allar loturnar í gegnum Zoom.
Kennarar
Dr. Sigrún Sigurðardóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri. BS í hjúkrunarfræði, MS í heilbrigðisvísindum, Phd í hjúkrunarfræði og hefur einnig lokið námi í Lögregluskóla Ríkisins. Hún er Kundalini jógakennari og hefur bætt við sig áfallamiðuð jóga, hugleiðslukennari í „Deepak Chopra Primorial sound meditation“. Hún hefur starfað sem lögreglukona víða um land á árum áður, starfað á geðdeild, í starfsenduhæfingu, á heilsugæslu, á öldrunardeildi og er nú í hlutastarfi á Heilsustofnun NLFI í Hveragerði.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða