-
Námsskeiðs gjald
kr 15.000
Yfirlit
Á stjörnuhimninum eru ótal undur sem gaman er að skoða með berum augum eða sjónaukum. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á norðurljós, geimveður, norðurljósaspár, stjörnuhiminninn, stjörnumerki og áhugaverð fyrirbæri sem sýna má fólki á meðan beðið er eftir norðurljósum. Þá verður fjallað um sólmyrkvann 12. ágúst næstkomandi en frá Norðurlandi sést verulegur deildarmyrkvi. Námskeiðið hentar því öllu áhugafólki um næturhiminninn og náttúruna en einkum og sér í lagi leiðsögufólki.
Hagnýtar upplýsingar
Námskeiðið er fyrir öll sem hafa áhuga á nóttinni, norðurljósum, stjörnufræði og stjörnuskoðun og vilja auka þekkingu sína á viðfangsefnunum. Það hentar sérstaklega vel leiðsögufólki og kennurum.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er staðarnám og verður kennt við Háskólann á Akureyri fimmtudaginn 5. mars 2026 kl. 17-20.
Námskeiðið verður í stofu M101, gengið inn um aðalinngang háskólans.
Efnisskrá
Nemendur fá enn betri sýn á undur næturhiminsins í gegnum lifandi fyrirlestur þar sem ýtt er undir virka þátttöku. Þau verða betur í stakk búin til þess að rýna í norðurljósaspár, geimveðurupplýsingar og kynnast fyrirbærum sem gaman er að skoða með berum augum eða sjónaukum á meðan beðið er norðurljósa.
Stuðst verður við efnistök bókarinnar Stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna (Forlagið, 2016), Stjörnufræðivefinn og nýja vefsíðu, Icelandatnight.is
Inntökuskilyrði
Engin inntökuskilyrði, aðeins áhugi og engin aldurstakmörk.
Dagskrá
Námskeiðið er kennt fimmtudaginn 5. mars kl. 17-20 í Háskólanum á Akureyri.
Kennarar
Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.
Kostnaður
Námskeiðið kostar 15.000 kr.
Athugaði rétt þinn á endurgreiðslu námsgjalda hjá þínu stéttarfélagi.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða