fbpx

Námstefna í Byrjendalæsi – 11. september 2026 í HA

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Námstefna í Byrjendalæsi 

Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans.

Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.

Á námstefnunni gefst kennurum tækifæri til að hittast, hlusta á áhugaverða fyrirlestra, deila hugmyndum og ræða saman.

Hagnýtar upplýsingar

Viðburðurinn verður haldinn í Háskólanum á Akureyri. 

 

Inntökuskilyrði

Öll velkomin. 

Kostnaður

Kostnaður er 8000 kr.

Ef þátttakendur hafa einnig áhuga á að fara á læsisráðstefnuna Læsi til náms og yndis á laugardeginum, þá er heildargjaldið kr. 25.000 - hægt er að skrá sig á báða viðburði með því að smella á þennan hlekk: https://smha.is/namskeid/namstefna-i-byrjendalaesi-og-radstefnan-laesi-fyrir-lifid/?planned_course_id=368603

Þeir sem ætla aðeins að taka þátt á föstudeginum smella á rauða hnappinn hér fyrir neðan til að skrá sig. 

 

 

Upphafsdagur
Upphafsdagur11 Sep 26
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 8.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða