fbpx

Námstefna í Byrjendalæsi og læsisráðstefnan Læsi til náms og yndis – 11. og 12. september 2026 í HA

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Námstefna í Byrjendalæsi og ráðstefnan Læsi til náms og yndis
 

Námstefna í Byrjendalæsi
Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans.

Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.

Á námstefnunni gefst kennurum tækifæri til að hittast, hlusta á áhugaverða fyrirlestra, deila hugmyndum og ræða saman.

Námstefnan er haldin á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. 
 

Ráðstefnan Læsi til náms og yndis
Á ráðstefnunni verður fjallað um læsi í víðum skilningi og hvernig huga þarf að öllum þáttum læsis í kennslu s.s. lesskilningi, ritun, munnlegri og skriflegri tjáningu og miðlun. Auk aðalfyrirlesara verða málstofuerindi þar sem kynntar verða aðferðir og reifuð ýmis mál er lúta að læsi. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og verður sérstaklega horft til þess að viðfangsefni ráðstefnunnar hafi hagnýtt gildi fyrir kennara.

Ráðstefnan er haldin á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við HA og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. 

Hagnýtar upplýsingar

Viðburðirnir verða haldnir í Háskólanum á Akureyri. 

Inntökuskilyrði

Öll velkomin. 

Kostnaður

Verð á námstefnu er 8.000 kr.
Verð á ráðstefnu er 20.000 kr. 

Gefinn er afsláttur fyrir þá sem mæta á báða viðburðina og er kostnaður þá 25.000 kr. 

Upphafsdagur
Upphafsdagur11 Sep 26
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 25.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða