fbpx

Nám í fíkniráðgjöf – önn 2

- NÁM Í ÁFENGIS- OG VÍMUEFNARÁÐGJÖF

Yfirlit

Námið veitir grunnþekkingu um fíknisjúkdóminn, um áhrif vímuefna á líkama og hegðun, um afleiðingar fíknisjúkdóms á fólk, fjölskyldur og samfélag. Námið gefur innsýn í ráðgjöf fyrir fólk með fíknisjúkdóm, faglega framgöngu í ráðgjafastarfi, og hugmyndafræði og siðfræði áfengis og vímuefnameðferðar. Einnig öðlast nemendur þekkingu á helstu gagnreyndu meðferðum sem styðja fólk til bata.

Námsmarkmið:

Að námi loknu á hver nemandi að hafa öðlast :

  • innsýn í stöðu og vanda fólks með fíknisjúkdóm og aðstandenda þeirra
  • Skilning á helstu leiðum til að styðja fólk til bata
  • Skilningur á fíknisjúkdómnum og fíknivanda, orsakir, afleiðingar og tengdir kvilla
  • Skilningur á áhrifum vímuefna
  • Skilning á hugmyndum um meðferð og ráðgjöf, og helstu klínísk vandamál fólks með fíknisjúkdóm út frá líf-sál-félagslegu módeli.
  • Skilning á sálfræðikenningum sem liggja til grundvallar inngripa, bakslagsvarnir, forvarnir og fleira.
  • Skilning á áhrifum fíknivanda á samfélagið

Námið telur þrjár annir og er þetta önnur önnin. 

 

Önn þrjú verður á dagskrá í janúar 2026

Hagnýtar upplýsingar

Hvað er sérstakt við þetta nám?

  • Þverfaglegt og sérsniðið að því að námsmenn öðlast þekkingu á fíknisjúkdómnum og er grunnur fyrir löggildingu sem áfengis og vímuefnaráðgjafi. Námið veitir ekki starfsleyfi. (sjá nánar um skilyrði fyrir löggildingu https://island.is/reglugerdir/nr/1106-2012)
  • Áfengis- og vímuefnavandi er stórt samfélagslegt vandamál og þörf er á fólki með þessa sérþekkingu. Áfengis-og vímuefnaráðgjafar gegna ekki einungis hlutverki í heilbrigðiskerfinu, heldur geta starfað víða, þar sem fólk með fíknisjúkdóm þarf þjónustu.

 

Fyrirkomulag

Nám í fíkniráðgjöf er 300 fræðslustundir og uppfyllir kröfur um fræðslu sem er hluti af skilyrðum til löggildingar. Námið er fjarnám og kennt í lotum á 3 önnum og hugsað með vinnu. Um vendikennslu er að ræða og umræðutímar og verkefnavinna eru í hverri lotu.

 

Námsmat:

Námsmat felst í skilum á verkefnum, t.d. stuttar greinargerðir um námsefnið sem er skilað jafnóðum,og  þátttaka í umræðum.  Að auki er valkvætt próf í lok hverrar annar til að staðfesta þekkingu fyrir nemendur sem hyggjast fá starfsréttindi.

 

Lesefni:

Doweiko, H. E. (2014). Concepts of Chemical Dependency (9th ed.). Cengage Learning.

Miller, W. R., Forcehimes, A. A., & Zweben, A. (2019). Treating Addiction: A Guide for Professionals (2nd ed.). Guilford.

Annað lesefni verður tilkynnt jafnóðum.

Efnisskrá

Fjarkennslu í vikulegum lotum þar sem nemendur horfa á fyrirlestra og hafa lesefni til hliðsjónar. Einnig vinna nemendur verkefni milli tíma til undirbúnings umræðutíma í fjarfundi. Fjarfundir eru vikulegir með kennara á fimmtudagskvöldum kl. 20-21. (sjá nánar í skipulagi).

 

Tungumál: Íslenska

Inntökuskilyrði

Engar forkröfur eru fyrir bóklega hlutann en til að komast í starfsþjálfun hjá SÁÁ þarf að sýna fram á stúdentspróf eða framhaldspróf. 

Námskeið hefst 22. ágúst og fyrsti umræðufundur er 28. ágúst. 

Skráningarfrestur er til 15. ágúst.  

Dagskrá

 

Efniskafli 4: Hugmyndafræði áfengis-og vímuefnaráðgjöf 

 

  • Markmið:
    • Skilja þróun fíknisjúkdóma frá upphaf neyslunnar til bata
    • Fá yfirsýn á gagnreyndum meðferðum og forvörnum
    • Skilja mismunandi kenningar og líkön um fiknisjúkdóm 

Efniskafli 5: Sálfræðikenningar 

  • Markmið:
    • skilja tengsl áfallar og fíknivanda/neyslu
    • Fá yfirsýn yfir HAM og hvernig HAM við fíkn virkar
    • Skoða hvernig neysla hefur áhrif á sjálfsvirðingu og tilfinningar 

Efniskafli 6: Siðfræði, lög og samfélagið 

  • Markmið:
    • Fara yfir siðfræði og lögin sem tengjast áfengis- og vímuefnaráðgjöf
    • Skoða hvernig fíknisjúkdómur hefur áhrif á samfélagið í heild sinni
    • Skoða algeng mál og umræður í samfélaginu í tengslum við neyslu vímuefna
    • Hvernig afbrot tengjast fíknivanda 
Kennarar

Sérfræðingar um fíknsjúkdóminn og meðferð hjá SÁÁ auk annarra sérfræðinga á sviðinu

Upphafsdagur
Upphafsdagur15 ág 25
TímalengdSímenntun
Verðkr 150.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða