-
Námsskeiðs gjald
kr 1.250.000
Yfirlit
Skráningarfrestur er til og með 15. ágúst 2023 - Námið sjálft hefst í september
Mannuðsstjórnun er sífellt að verða mikilvægari fyrirtækjum og stofnunum hér á landi. Skipulagsheildir hafa séð að fátt er verðmætara en mannauðurinn og til þess að ná því mesta út úr fyrirliggjandi mannauð skiptir góður mannauðsstjóri höfuð máli.
Meistaragráða í mannauðsstjórnun er nýjasta viðbótin okkar úr flóru námsleiða frá UHI. UHI hefur fyrir löngu sannað sig sem háskóli sem er í fararbroddi í fjarnámi á heimsvísu. Mannauðsstjórnunargráðan frá UHI er vottuð af breska gæðaráðinu og gefur alþjóðleg réttindi sem mannauðsstjóri.
Hvort sem þú ert nemandi að leita að viðbótarnámi eða hefur unnið í bransanum í mörg ár þá gæti þetta nám hentað þér.
Námið er vottað af QAA (The Quality Assurance Agency for Higher Education) í Bretlandi og er sett upp sem 100% fjarnám frá grunni. Hægt er að velja á milli þess að taka námið í fullu námi (e. Full time) eða að hluta til (e. Part-time). Verkefnin eru unnin á eigin vegum og á eigin tíma sem þýðir að þú lætur námið henta þér og þínu skipulagi.
UHI er framsýnn háskóli sem er staðsettur á nokkrum stöðum í Skotlandi, nýtir sérstöðu sína í að bjóða ferska nálgun á háskólanám, allt frá grunnnámi upp í Phd gráður.
Í náminu njóta nemendur tæknilegrar aðstoðar Símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt almennri handleiðslu þegar við á.
Þar sem námið er alfarið í höndum Unviersity of Higlands and Islands fer kennslan fram á ensku.
Í námslok gefst nemendum kostur á að fara í ferð til Perth í Skotlandi til að taka við útskriftarskírteinum sem og að sækjast eftir aðild að CIPD vottun.
Námið er lánshæft hjá Menntasjóði íslenskra námsmanna og er einnig niðurgreitt af öllum starfsmenntasjóðum landsins.
Hagnýtar upplýsingar
What is special about this course?
Whether you are a graduate looking to gain employment in this specialist field or already in work and needing to develop your skills and abilities, the part-time, CIPD accredited MSc in Human Resource Management is ideal for you.
HR professionals play a crucial role in the development of organisations, and this professionally accredited award is designed to help current and future HR practitioners prepare for the challenges and opportunities in today’s rapidly changing business environment.
Special features
- CIPD accredited - on successful completion, you will be eligible to seek Associate membership of the CIPD, the professional body for HR specialists*
- If you are working in human resources or learning and development at a managerial or strategic level you can apply to upgrade from Associate Member to Chartered Member or Chartered Fellow*
- 100% student satisfaction (Postgraduate Taught Experience Survey 2019)
- Flexible delivery options - means that you can study part time, taking either one or two modules per semester; attending online workshops and tutorials, through the university's virtual learning environment
- Taught by experienced HR practitioners
- Applied and practical assessments - you will undertake a major piece of advanced independent work within the area of HR at a strategic level, as well as a placement for those not already working within the HR profession
- Excellent online supportive learning environment
- Individual modules for CPD - you can choose to study individual modules for continuing professional development or work towards the PgCert, PgDip, or full Masters degree
*You will be required to join the CIPD as a student member if you wish to receive Associate or Chartered Membership on completing the award.
What can I do on completion of my course?
This programme prepares students to operate as HR professionals and in the management of human resources, within a wide range of private, public and third sector organisations.
You will be eligible to seek Associate Membership of the CIPD, the professional body for HR specialists. If you work in human resources or learning and development, at managerial or strategic level, you can apply to upgrade from Associate Member to Chartered Member or Chartered Fellow.
Allt um námið má nánar sjá hér. Endilega sendið okkur línu á simenntunha@simenntunha.is ef einhverjar spurningar vakna.
Fyrirkomulag fjarnáms
Hægt er að velja um að fara í fullt nám eða hlutanám. Algengast er að námið sé tekið með vinnu og þá í hlutanámi.
Fullt nám spannar 3 annir, fyrstu tvær annirnar í áföngum (3 áfangar á önn) og þriðja önnin notuð í ritgerðina.
Hægt er að velja um hversu hratt er farið í hlutanámið, allt eftir því hversu marga áfanga þú velur að taka. Algengast er að nemendur taki hlutanámið á 3 árum, þrír áfangar á ári fyrstu tvö árin og þriðja árið í ritgerðarskrif. UHI kemur vel til móts við nemendur með fjölda áfanga á önn og því hægt að taka námið á lengri tíma ef vilji er fyrir því.
Námið fer alfarið fram á netinu og er sett upp frá grunni sem fjarnám fyrir vinnandi fólk. Hvað þýðir það fyrir þig? Að þú ert einn af fjölmörgum fjarnemum í náminu, þið hittist á fjarfundum (sem eru þó valkvæðir) og þú upplifir þig sem hluta af hópnum en ekki fyrir utan hópinn sem er allur staddur "on campus" eins og mörg önnur fjarnám eru sett upp. Fjarfundir eru oftast utan hefðbundins vinnutíma og öll verkefni einstaklingsverkefni svo þú vinnur á þínum tíma, óháður öðrum nemendum.
Efnisskrá
MSc
Core modules:
- Managing and developing the human resource (S1)
- Managing in the global network (S2)
- Employment law (S1)
- Employee relations (S2)
- Research for business (S1)
- Applied research project (S1 or S2 start).
You will also choose one option module from the following:
- Information decision-making (S2)
- Effective communications (S1)
Inntökuskilyrði
Til að komast inn í námið hjá UHI þurfa nemendur að hafa lokið grunngráðu á háskólastigi (180 ECTS einingar).
Nemendur þurfa að senda inn ferilskrá, prófskírteini (á ensku) og skannaða mynd af vegabréfi á simenntunha@unak.is
Mat umsókna fer eftir árangri í fyrra námi og störfum eftir útskrift.
Dagskrá
15. ágúst 2023 - Skráningarfrestur rennur út
Fyrsta önn hefst 5. september 2023 og lýkur í janúar 2024.
Önnur önn hefst 23. janúar 2024 og lýkur í júní 2024.
Þriðja önn hefst í september 2024 og lýkur í janúar 2025.
Kostnaður
Full-time nám (sex áfangar og ritgerð) kostar kr. 1.250.000*. Ef kosið er að taka námið á lengri tíma og vera í Part-time námi er greitt fyrir hverja einingu sem tekin er. Verð á hvern áfanga í hlutanámi er kr. 155.000. (ATH að ritgerðin er skilgreind sem jafngildi þriggja áfanga og verð samkvæmt því).
Námið er lánshæft hjá Menntasjóði íslenskra námsmanna og er einnig niðurgreitt af öllum starfsmenntasjóðum landsins.
Óafturkræft staðfestingargjald er kr. 75.000. Greiðsluseðill verður sendur með því þegar skráning berst og þarf að greiðast fyrir 17. ágúst 2023.
Ekki skal greiða námsgjöldin við skráningu, heldur velja að greiða með greiðsluseðli. Þegar kemur að því að borga fyrir námið verður haft samband við nemendur. Hægt er að skipta allt að kr. 900.000 á greiðslukort í gegnum kortalán Valitor í allt að 36 mánuði sé þess óskað.
Endilega hafið samband við okkur í síma 460-8090 eða á netfangið simenntunha@simenntunha.is ef einhverjar spurningar vakna um greiðslufyrirkomulag eða annað.
* = Verð byggir á GBP gengi og getur því tekið breytingum.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða