-
Námsskeiðs gjald
kr 79.000
Yfirlit
„Meðvirki“ stjórnandinn getur verið „hættulegur“ stjórnandi. Þá er ekki átt við „hættulegur“ á ofbeldisfullan hátt, heldur er verið að tala um stjórnanda sem er mjög meðvirkur með sínum starfsmönnum, forðast að taka á krefjandi starfsmannamálum, er átakafælinn, vill ekki rugga bátnum, frekar halda friðinn og halda öllum góðum. Samt sem áður kraumar undir niðri spenna og óánægja innan starfsmannahóps, sem stjórnandi velur að takast ekki á við, og vonar að vandinn leysist af sjálfu sér. Sem með tímanum mun grafa meira undir liðsheildinni.
Stjórnandi þarf að aftengja líðan sína í faglegu starfi, þora að höggva á hnúta áður en þeir herðast, kunna að gera greinarmun á hvenær faglegur ágreiningur milli starfsmanna er að þróast yfir í persónulegan ágreining, sem getur gerst hratt. Snemmt inngrip stjórnanda skiptir þar mikilvægu máli, til að stýra smá vandamáli yfir í það að þróunin verði stórt vandamál, sem verður erfitt að vinda ofan af.
Starfsmaður sem upplifir meðvirkni frá stjórnanda í sinn garð, ber líka skylda til að ræða við stjórnanda að hann vilji ekki meðaumkun, heldur skýr svör og tekið sé á málum sem koma upp. Starfsmaður sem nýtir sér meðvirkni stjórnanda á kostnað annara starfsmanna er ekki heiðarlegur, Stjórnendur sem hafa góða tilfinningagreind þekkja líðan starfsmanna, en þurfa að styrkja tilfinningastjórn sína til að ýta ekki undir vandamál vegna líðan starfsmanna. Samt vera til staðar, hlusta, en vera með skýr skilaboð hver ber ábyrgð á eigin líðan. Ef það þarf að grípa inn í og setja af stað einhverskonar greiningarvinnu á vinnustað, fer stjórnandi að sjálfsögðu í að setja slíkt ferli af stað.
Námskeiðið verður haldið í Háskólanum á Akureyri
Hagnýtar upplýsingar
Nemendur fá sendan spurningalista fyrir námskeiðið sem þeir þurfa að svara.
Efnisskrá
Námskeiðið er ætlað stjórnendum. Nemandi mun eflast varðandi eiginleika í sínu fari sem eru að „þóknast“ frekar en að taka á vandamálum sem koma upp varðandi mannlega hegðun innan vinnustaða. Kennsla fer fram með fræðslu og vinnubók fyrir nemandann. Vinnubókin er verkfæri fyrir stjórnandann til að verða betri í að taka á algengum vandamálum sem koma upp í samskiptum innan liðsheilda.
Inntökuskilyrði
Það eru engin inntökuskilyrði.
Dagskrá
Námskeiðið verður haldið 14. október frá kl. 13-16 í Háskólanum á Akureyri.
Kennarar
Kostnaður
Verð námskeiðsins er 79.000 kr.
Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða