-
Tímalengd
2 vikurNámsskeiðs gjald
kr 18.000
Yfirlit
Námskeiðið er tvær vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar.
Hagnýtar upplýsingar
Námskeiðið hefst 13. mars og er í 2 vikur. Fundir með kennara eru á fimmtudögum kl. 20:00, þann 20. mars og 27. mars 2025.
Námskeiðið myndi henta öllum þeim sem vilja stofna sinn eigin rekstur og/eða fyrirtæki. Einnig þeim sem eru nú þegar í rekstri en vilja taka virkari þátt í fjármálahluta rekstrarins.
Fyrirkomulag fjarnáms
Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar. Æfingar og verkefni verða lögð fyrir þar sem raunverulegir ársreikningar verða greindir og helstu kennitölur reiknaðar.
Einu sinni í viku hittumst við á fjarfundi þar sem hægt verður að koma með spurningar, raundæmi og farið verður yfir verkefnið. Krossapróf verða opin á kennslusvæðinu þar sem þátttakendur geta æft sig og dýpkað skilninginn á efninu. Engar einkunnir eru gefnar og þátttakendur geta tekið krossaprófin eins oft og þeir vilja.
Efnisskrá
Við lok námskeiðsins eiga þátttakendur að hafa öðlast betri skilning á uppsetningu ársreikninga og hvernig á að lesa úr þeim. Þátttakendur geta nýtt þætti námskeiðsins til þess að taka betri ákvarðanir byggðar á upplýsingum sem þeir túlka úr ársreikningum.
Inntökuskilyrði
Engin inntökuskilyrði eru. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynnast betur hvernig rekstur fyrirtækis virkar og þeim sem hafa hug á að stofna fyrirtæki og/eða rekstur.
Dagskrá
Dagskrá
| Fyrirlestrar | Fjarfundir | Verkefni og krossapróf |
Vika 1 |
|
|
|
| Uppsetning ársreikninga | Fjarfundur 1 | Krossapróf |
| Helstu upplýsingar í ársreikningum |
|
|
|
|
|
|
Vika 2 |
|
|
|
| Kennitölur og fjárhagsupplýsingar | Fjarfundur 2 | Útreikningur á kennitölum |
| Túlkun ársreikninga |
| Túlkun upplýsinga |
|
|
|
|
Kostnaður
Verð námskeiðsins er 18.000 kr.
Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða