fbpx

Leiðtoganám í læsi haust 2025

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

LEIÐTOGANÁM Í LÆSI

Læsi í skóla, Byrjendalæsi og Læsi fyrir lífið.  Námið er á framhaldsstigi og í umsjón MSHA. Meginmarkmið leiðtoganámsins er að styrkja kennara faglega sem leiðtoga í námssamfélagi læsiskennara í grunnskóla. Kennsla fer fram á þremur misserum og geta þátttakendur lokið því á einu og hálfu ári. Þátttakendur þurfa að vera starfandi kennarar og hafa möguleika á að tengja námið við starfsvettvang.

Í námsskeiðinu er sjónum beint að hlutverki leiðtoga í læsi. Jafnframt að gera þátttakendur meðvitaðri um eigin starfskenningu og hvernig starfstengd leiðsögn getur eflt faglega starfshæfni m.a. einstaklinga, hópa og reyndra kennara. Leiðtogi í læsi leiðir námssamfélag kennara í sínum skóla með félagastuðningi, samræðum um efni og aðferðir. Viðfangsefnin miða að því að auka og dýpka þekkingu kennara á fjölbreyttum aðferðum sem styðja og efla læsi á öllum stigum grunnskólans og færni í að nota þær. Fjallað er um leiðir til að efla orðaforða og skilning, ritun, samvinnunám og samræðu til náms. Athygli er beint að mikilvægi áhugahvatar fyrir læsisnám, sjálfstæði í námi, námsaðlögun og námsvitund. Á námskeiðinu er horft á viðfangsefni læsis í ljósi tækniþróunar nútímans. Kynnt verða smáforrit sem eru sérstaklega gerð til að þjálfa ýmsa færniþætti í læsisnámi grunnskólanemenda.

Hagnýtar upplýsingar

Námið er þrjár annir og að mestu leyti fjarnám. Það eru tvær staðlotur. Ein að hausti á 1. önn og ein að vori á 2. önn. 

Fyrirkomulag fjarnáms

Kennslan fer fram í gegnum kennslukerfið Canvas, þátttakendur hafa aðgang að öllu kennsluefni og fyrirlestrum á netinu. 

Efnisskrá

Um er að ræða 15 ECTS eininga námskeið sem skiptist upp í þrjá fimm eininga áfanga.

Námskeiðið er vettvangs- og starfsmiðað og munu þátttakendur gera rannsókn á vettvangi þar sem þeir afla gagna sem unnið er úr í samráði við kennara í þeirra skólum og aðra kennara á námskeiðinu. Kennsla í námskeiðinu verður með fjölbreyttum hætti í formi fyrirlestra, umræðna, verkefnavinnu og fjarfunda. Lögð er áhersla á kennsluhætti sem hvetja til virkrar þátttöku þátttakenda.

Inntökuskilyrði

Umsækjandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu og hafa starfað við kennslu í a.m.k. tvö ár. 

Dagskrá

Staðlota verður föstudaginn 8. ágúst  kl. 08.15-16.00 í Háskólanum á Akureyri. 

Lota 2  er 14. október -  fjarkennsla -  kl.14:00-16:00

Lota 3  er  26. nóvember - fjarkennsla - kl.14:00-16:00

Reglulega eru opnir tímar fyrir fyrirspurnir og fleira. 

Kennarar

Anna Sigrún Rafnsdóttir, Íris Hrönn Kristinsdóttir, Jenný Gunnbjörnsdóttir og Sigríður Ingadóttir, sérfræðingar hjá MSHA.

Nánari upplýsingar gefa:


Anna Sigrún (annasigrun@unak.is)

Íris Hrönn (iris@unak.is)

Kostnaður

Leiðtoganámí læsi I - haust 2025 - 150.000 kr.
Leiðtogatoganám í læsi II - vor 2026 - 150.000 kr. 
Leiðtoganám í læsi III - haust 2026 - 150.000 kr.  

Ath. Fyrirvari er um að námið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg. 

Umsagnir um námskeið

Mér finnst námið hafa verið mjög gefandi og lærdómsríkt þar sem ég hef öðlast nýja reynslu í gegnum leiðtoganámið. Það hefur hjálpað mér að þróa með mér faglegan þroska sem leiðtogi og stjórnandi. Með ígrundun og hugleiðingum geri ég mér nú betur grein fyrir hvernig leiðtogi ég vil vera. Námið er vel upp byggt, einstaklega fjölbreytt og kennararnir eru styðjandi og  afar hæfileikaríkir.

Mér finnst læsisleiðtoganám MSHA hafa verið skemmtilegt og lærdómsríkt ferli. Mér finnst það fyrst og fremst hafa styrkt mig sem læsis kennara og gefið mér aukið sjálfstraust sem leiðtogi í læsi. Skipulag námsins hentaði mér vel og mér fannst verkefnin áhugaverð og gagnleg. Kennararnir eru mjög hvetjandi og mér fannst ég fá mjög góðan stuðning og endurgjöf frá þeim. 

Flott námskeið, vel skipulagt og áhugavert. Kennararnir fá hrós fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mann, þeir eru áhugasamir og tiltækir.

Áhugavert námskeið, gott skipulag og utanumhald.

 

Upphafsdagur
Upphafsdagur01 ág 25
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 150.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða