fbpx

Læsisráðstefna í HA 2026 – Læsi til náms og yndis – 12. september 2026

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Ráðstefnan Læsi til náms og yndis
Laugardaginn 12. september 2026

Á ráðstefnunni verður fjallað um læsi í víðum skilningi og hvernig huga þarf að öllum þáttum læsis í kennslu s.s. lesskilningi, ritun, munnlegri og skriflegri tjáningu og miðlun. Auk aðalfyrirlesara verða málstofuerindi þar sem kynntar verða aðferðir og reifuð ýmis mál er lúta að læsi. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og verður sérstaklega horft til þess að viðfangsefni ráðstefnunnar hafi hagnýtt gildi fyrir kennara.

Hagnýtar upplýsingar

Viðburðurinn verður haldinn í Háskólanum á Akureyri. Nánari upplýsingar má fá með að senda tölvupóst á Írisi iris@unak.is.

Inntökuskilyrði

Öll velkomin. 

Kostnaður

Verð á ráðstefnu 20.000 kr. 

Ef þátttakendur hafa einnig áhuga á að fara á námstefnu í Byrjendalæsi á föstudeginum 11. september, þá er heildargjaldið kr. 25.000 - hægt er að skrá sig á báða viðburði með því að smella hér: https://smha.is/namskeid/namstefna-i-byrjendalaesi-og-radstefnan-laesi-fyrir-lifid/?planned_course_id=368603

Þeir sem ætla aðeins að fara á ráðstefnuna á laugardeginum smella á rauða hnappinn hér fyrir neðan til að skrá sig. 

 

Upphafsdagur
Upphafsdagur12 Sep 26
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 20.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða