fbpx

KVINNA: Ósköpin öll og krafturinn á breytingaskeiðinu. Verkefnastýring í lífi og starfi

- 100% fjarnám

  • Næsta námskeið hefst
    03 Mar 25
    Allir upphafsdagar
  • Tímalengd
    2 vikur
  • Námsskeiðs gjald
    kr 65.000
Yfirlit

 

Skráningarfrestur er til 25. febrúar 2025.

 

Námskeiðið inniheldur fræðslu og þekkingarmiðlun um gagnlega nýtingu á verkefnastýringu í lífi og starfi í takt við hormónabreytingar, líkamlegt heilbrigði og læknisfræði kvenlíkamans ásamt verkfærum, lausnum og tileinkun á nýjustu rannsóknum. Námskeiðið er í umsjá TÝRU verkefnastýringar. Gestakennarar eru Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og sérfræðingur á sviði breytingaskeiðs kvenna og eigandi Gyna Medica - lækninga og heilsumiðstöð fyrir konur og Aðalheiður Jensen yfirþjálfara og eiganda Tilveran heilsuseturs

 

Innifalið í námskeiðinu er einkatíma fyrir hvern og einn þátttakanda í lok námskeiðsins hjá TÝRU Verkefnastýringu og miðast hann að því að efla heildræna hugsun, skipulag og yfirsýn.


Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái heildræna og greinagóða yfirsýn yfir nýtingu verkefnastýringar í lífi og starfi út frá hormónabreytingum og nýjustu rannsóknum um viðfangsefnið og fræðslu í tengslum við læknisfræði og líkamlegt heilbrigði. Miðluð er til þátttakenda fræðsla og verkfæri sem ýmist veita stuðning eða stuðla að lausnum og eflingu í tengslum við einkalíf, atvinnulíf og þær samfélagslegar aðstæður sem kunna að snúa að hormónabreytingum og breytingaskeiðinu. 

Einn af aðal hvötum fyrirlesara er að taka þátt í að efla útbreiðslu á faglegri þekkingu og lýðheilsu er tengist hormónabreytingum kvenna sem og eflingu á heilsulæsi samfélagsins. Rannsóknir gefa sterkar vísbendingar um að aðgerðarleysi, skortur á þróun í kvennheilsu eða hlutlaust viðhorf til kvenheilsu hafi umfangsmikil áhrif á atvinnulíf, fjárhag þjóðar og á samfélagið í heild. Í rannsóknunum er það rætt að áríðandi sé að leggja ríka áherslu á að litið sé á málefni sem snúa að kvenheilsu og  breytingaskeiðinu sem mikilvægt lýðheilsumál sem nauðsynlegt sé að efla og fanga sem eðlilegur líffræðilegur þroski manneskjunnar. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái greinagóða yfirsýn yfir nýtingu verkefnastýringar í lífi og starfi út frá hormónabreytingum ásamt þekkingu á nýjustu rannsóknum, verkfærum, stuðningi og lausnum í tengslum við samfélagslegar aðstæður í kringum hormónabreytingar og breytingaskeiðið.

Breytingaskeiðið er hluti af líffræðilegum þroska konunnar og tilgangur þess að efla hana enn frekar til ábyrgðar og verkefna. Rannsóknir gefa sterkar vísbendingar um að aðgerðarleysi eða hlutlaust viðhorf til breytingaskeiðsins hafi umfangsmikil áhrif á atvinnulíf, fjárhag þjóðar og á samfélagið í heild. Lögð er rík áherslu á að litið sé á málefni sem snúa að breytingaskeiðinu sem mikilvægt lýðheilsumál sem nauðsynlegt sé að efla. 

Sextíuþúsund konur á Íslandi eru þessa stundina að upplifa einkenni breytingaskeiðsins sem hafa áhrif á líf þeirra og störf. Á námskeiðinu er rýnt í stöðu kvenna á breytingaskeiðinu í atvinnulífinu og mögulegar aðgerðir og stuðning, er varða málefni breytingaskeiðsins, sem erlendar rannsóknir benda til að séu til bóta fyrir konur og atvinnulífið. 

Hagnýtar upplýsingar

5 skipta fjarnámskeið frá 3. mars 2025. Rafrænir 1,5 klst fundir/fyrirlestrar með leiðbeinendum námskeiðsins eru uppistaðan og því mikilvægt að komast í tímana. Tímasetningar eru hér neðar undir “Dagskrá”.

Innifalið í námskeiðinu er einkatími hjá Týru verkefnastýringu sem og afslættir:

25% afslátt af fjölbreyttum einkatímum hjá TÝRA verkefnastýringu í gegnum Kara Connect. https://karaconnect.com/is/

20% afslátt af 10 tíma klippikorti Tilveran Heilsusetur

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið fer alfarið fram í fjarnámi og kennt í gegnum Zoom, glærur og annað efni er aðgengilegt á vef námskeiðsins. Að loknu námskeiði er gefið út þátttökuskírteini.

Fjarfundirnir eru 5 talsins og hver um 1,5-2 klst að lengd. Fundirnir eru kl.17:30 og hefjast þann 4. mars 2025. Dagsetningar næstu funda má finna undir “Dagskrá”.

Einkatímarnir hjá Týru Verkefnastýringu sem eru innifaldir í námskeiðinu fara fram 20. og 21. mars. Þátttakendur fá boð um að velja tímasetningar sem henta í byrjun námskeiðsins.

Námskeiðið er í heild um 8,5 klst á fundum, þar að auki má áætla tíma í lestur og vinnu utan fundanna.


 

Efnisskrá

 

 

Afslættir fyrir þátttakendur:

25% afslátt af fjölbreyttum einkatímum hjá TÝRA verkefnastýringu í gegnum Kara Connect. https://karaconnect.com/is/ 

20% afslátt af 10 tíma klippikorti Tilveran Heilsusetur


 

Dagskrá

Allir tímar námskeiðsins eru rafrænir og fara fram í gegnum zoom kl. 17:30. Hver tími er um 1,5 klst að lengd.

 

  • Mánudagurinn 3.mars: ÓSKÖPIN ÖLL OG KRAFTURINN SEM BREYTINGASKEIÐIÐ BER Í SKAUTI SÉR.  Saga breytingarskeiðsins í einka- og atvinnulífinu og nýjustu rannsóknir. Hvað er breytingaskeiðið og verkefnastýring þess í lífi og starfi. Umsjá: TÝRA verkefnastýring.

  • Miðvikudagurinn 6. mars: LÆKNISFRÆÐIN. Gestakennari, Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og sérfræðingur í breytingskeiðinu, eigandi GynaMedica; KRAFTUR KVENNA. Hormónakerfið,  læknisfræðin, viðbrögð líkamans, mítur o.fl.. 

  • Mánudagurinn 10. mars: NÝJUSTU RANNSÓKNIR. Heilinn og hormónakerfið. Saga breytingaskeiðsins og nýjustu rannsóknir. Hvað er breytingaskeiðið og verkefnastýring þess í lífi og starfi. Umsjá Týra verkefnastýring.

  • Miðvikudagurinn 12. mars: LÍKAMSRÆKT, LÍKAMLEGT HEILBRIGÐI OG JAFNVÆGI. Gestakennari, Aðalheiður Jensen þjálfari og eigandi Tilveran Heilsusetur; Líkamsþjálfun, streitulosun, taugakerfið og andleg heilsa.

  • Mánudagurinn 18. mars: HEILDRÆN VERKEFNASTÝRING Á BREYTINGARSKEIÐINU. Hvað er breytingaskeiðið og verkefnastýring þess í lífi og starfi. Fyrirlestur og umræður með Týru verkefnastýringu ásamt gestakennurum.
     

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Námskeiðið kostar 65.000 kr. 

Athugið að stéttarfélög niðurgreiða all flest námskeið.

 

Þátttakendur fá 25% afslátt af fjölbreyttum einkatímum hjá TÝRA verkefnastýringu í gegnum Kara Connect. https://karaconnect.com/is/

Þátttakendur fá 20% afslátt af 10 tíma klippikorti Tilveran Heilsusetur

Upphafsdagur
Upphafsdagur03 Mar 25
TímalengdSímenntun
Verðkr 65.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða