fbpx

Jákvæð sálfræði

- 100% fjarnám

Yfirlit

Viltu reyna jákvæða sálfræði á eigin skinni?

Á námskeiðinu lærir þú hvað jákvæð sálfræði er og hvernig jákvæð inngrip eru og reynir þau verkfæri á eigin skinni.

2x Einkatímar með Hrefnu

7x Vikulegir zoom fundir með kennara og öllum hópnum

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið byggir á jákvæðri sálfræði og býður þér að prófa á eigin skinni það sem einkennir þá sem mælast hamingjusamir og þrífast í lífinu. Þátttakendur hittast einu sinni í viku í 7 vikur. Í upphafi og við lok námskeiðsins fer hver og einn í einkaviðtal þar sem farið er yfir markmið og reynslu. 

Á námskeiðinu prófa þátttakendur fjölbreytt inngrip úr jákvæðri sálfræði og skrá upplifun sína í dagbók. 

Dæmi um inngrip eru: – þakklætisæfingar – góðverk – seigluverkefni – gróskuviðhorf (growth mindset) – meðvituð notkun á eigin styrkleikum og fleira. 

Þátttakendur taka hamingjumælingu reglulega. Markmiðið er að læra á eigin hamingjuvaka, efla sjálfsþekkingu, efla bjartsýni og efla von. Námskeiðið byggir á ritrýndum rannsóknum og er innblásið af vinsælasta námskeiði Yale-háskóla frá upphafi. Einnig hefur íslensk meistararitgerð rýnt í námskeiðið og staðfest gildi þess.
 

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er fjarnám og kennt á netinu gegnum Zoom á miðvikudögum kl. 19-21.

-Tveir einkatímar með Hrefnu.

-Þátttakendur halda dagbók og fá vikuleg verkefni.

-Markmið námskeiðsins er að auka sjálfsþekkingu og eigin hamingjuvaka.

-Á námskeiðinu er talsvert lagt upp með virkni þátttakenda og umræðum.

Efnisskrá

Helstu efnisþættir:

-Hvað er jákvæð sálfræði, hvað er jákvæð sálfræði inngrip?

-Þakklætisæfingar

-Styrkleikar og meðvituð notkun þeirra

-Viðhorf

-Seigla

-Góðverk

-Vonaráætlun, efla bjartsýni

-Samskipti

-Dagbókarverkefni milli samverustunda

Dagskrá

Námskeiðið fer fram á rafrænum fundum á miðvikudögum frá kl. 19 - 21. 

Dagsetningar Zoom funda:

17. nóvember (og viðtöl í framhaldi af því)

24. nóvember

1. desember

8. desember

15. desember

22. desember

29. desember (og seinna markþjálfunarviðtal í vikunni þar á eftir, frá 5. - 9. janúar)

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Verð 79.900 kr. 

Athugið að flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjald eða hluta þess.

Umsagnir um námskeið

“Þetta var frábært námskeið í alla staði. Aðferðir sem Hrefna notar til þess að fá hópinn til að opna sig og vinna saman eru frábærar.”

“Þetta var algjörlega frábært námskeið.”

“Hef farið á nokkur námskeið, mjög góð en Hrefna notaði aðferðir sem virkuðu svo 100%.”

“Námskeiðið er mjög gott og ég hækkaði í hamingju-einkunninni fyrir hvernig ég met gæði lífs míns á meðan námskeiðinu stóð.”

“Mikil og góð orka, var hvetjandi, jákvæð, glaðleg, skemmtileg, hrífur mann með sér, maður finnur að hún hefur mikla trúa á gleðinni. Ég held ég kæmist á Mont Everest ef Hrefna væri með til að hvetja mig.”

“Hrefna, þú kannt þitt fag virkilega vel, ert styðjandi og hefur mikla útgeislun.”

“Það var bæði skemmtilegt og gagnlegt að vera á námskeiðinu hjá Hrefnu. Hún kom með góð ráð og mér leið eins og væri verið að leiðbeina mér persónulega þótt námskeiðið væri gert fyrir hópinn.”

Upphafsdagur
Upphafsdagur17 Nó 25
TímalengdSímenntun
Verðkr 79.900

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða