fbpx

Jákvæð leiðtogafærni í starfi og lífi

- 100% fjarnám

Yfirlit

Jákvæð forysta er hugtak úr fræðum Kim Cameron innan vinnu- og jákvæðrar sálfræði og fjallar um hvernig við getum skapað aðstæður sem leiða til framúrskarandi árangurs.

Á þessu námskeiði fá þátttakendur hagnýt verkfæri sem nýtast í starfi, hvort sem þeir eru stjórnendur eða vilja efla leiðtogahlutverk sitt í eigin starfi og lífi.

Hagnýtar upplýsingar

Farið verður yfir helstu efnisþætti jákvæðrar forystu:
•    styrkleika og dyggðir
•    tilgang og merkingu
•    tengsl og samskipti
•    hugarfar og orku
•    vinnustaðamenningu og sálfræðilegt öryggi

Við skoðum:
•    hvað einkennir uppbyggilega vinnustaðamenningu
•    hvernig samskipti á vinnustað skapa traust og árangur
•    hvernig nýta má styrkleika markvisst í starfi
•    hvernig merking og tilgangur auka skuldbindingu og frammistöðu
•    hvaða hegðun eflir jákvæða menningu og sjálfbæran árangur

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er fjarnám og kennt á netinu gegnum Zoom á miðvikudögum kl. 19-21.

Efnisskrá

Helstu efnisþættir: 
Hvað er jákvæð leiðtogafærni 
Dyggðir og styrkleikar
Sálrænt öryggi og vinnustaðamenning
Hugarfar og orka
Tengsl og samskipti 
Tilgangur og merking

Dagskrá

Markmið námskeiðsins er að skoða hvernig starf getur orðið vettvangur vaxtar, merkingar og styrkleika – ekki aðeins verkefni sem þarf að sinna, heldur einnig hlutverk og árangur sem styður við persónulegan og faglegan þroska.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á virkni þátttakenda, umræður og verkefni sem nýtast beint í leik og starfi.

Dagsetningar Zoom funda:

8. apríl
15. apríl
22. apríl
29. apríl
6. maí
13. maí

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Verð 79.900 kr.

Athugið að flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjald eða hluta þess.

Umsagnir um námskeið

– Þetta var frábært námskeið í alla staði. Aðferðir sem Hrefna notar til þess að fá hópinn til að opna

   sig og vinna saman eru frábærar.

– Þetta var algjörlega frábært námskeið.

– Hef farið á nokkur námskeið, mjög góð en Hrefna notaði aðferðir sem virkuðu svo 100%.

– Námskeiðið er mjög gott og ég hækkaði í hamingju-einkunninni fyrir hvernig ég met gæði lífs míns.

– Hefði viljað að námskeiðið væri lengra.

– Mikil og góð orka, var hvetjandi, jákvæð, glaðleg, skemmtileg, hrífur mann með sér, maður finnur

  að hún hefur mikla ástríðu. Ég held ég kæmist á Mont Everest ef Hrefna væri með til að  

  hvetja mig! 

–Það var bæði skemtilegt og gagnlegt að vera á námskeiðinu hjá Hrefnu. Hún kom með góð ráð og

   mér leið eins og væri verið að leiðbeina mér persónulega þótt námskeiðið væri gert fyrir hópinn.

 

Sjá nánar: Umsagnir – Hamingjuvísir (hamingjuvisir.com)

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða