Innri þróunarmarkmiðin – Hvernig innri velferð leiðir til ytri grósku
- Heilsa og samfélag
-
Tímalengd
6 vikurNámsskeiðs gjald
kr 96.500
Yfirlit
Innri þróunarmarkmiðin (Inner Development Goals – IDG) er 6 vikna námskeið fyrir einstaklinga, stjórnendur og starfsfólk sem vilja efla innri styrk, vellíðan og hæfni til að takast á við áskoranir samtímans. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig eiginleikar á borð við sjálfsþekkingu, samkennd, hugrekki, sköpunargáfu og innri áttavita geta stuðlað að jákvæðum breytingum í einkalífi, starfi og samfélagi.
Námskeiðið byggir á alþjóðlega IDG-rammanum sem þróaður var til að styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SDG) með áherslu á hvaða innri eiginleika þarf að leggja rækt við til að styðja við ytri breytingar. Kennslan samanstendur af fræðslu, umræðum, verkefnum og æfingum sem styðja þátttakendur í að lifa og starfa með meiri meðvitund, jafnvægi og tilgangi.
Hagnýtar upplýsingar
Þátttakendur fá valið lesefni og stutt myndbönd milli tíma ásamt einföldum heimaverkefnum og æfingum sem styðja við nám og persónulega innsýn.
Námskeiðið er kennt í Háskólanum á Akureyri á þriðjudögum.
Efnisskrá
Á námskeiðinu verður meðal annars unnið með eftirfarandi þætti:
-Að efla sjálfsþekkingu og meðvitund um eigin gildi og styrkleika.
-Að þjálfa hæfni á borð við virka hlustun, hugrekki og skapandi hugsun.
-Að læra aðferðir sem styðja við aukna vellíðan og jafnvægi í daglegu lífi.
-Að efla samskiptafærni og hæfni til að takast á við breytingar og áskoranir.
-Að dýpka skilning á tengslum innri velferðar og jákvæðra ytri þátta.
-Að þátttakendur geti nýtt aðferðir námskeiðsins í eigin lífi, starfi og samskiptum.
Þátttakendur fá einnig valkvæð heimaverkefni sem taka um 10 mínútur á dag.
Dagskrá
Námskeiðið fer fram í Háskólanum á Akureyri á þriðjudögum kl. 14:00–16:00.
Kennt er á eftirfarandi dagsetningum:
-15. september
-22. september
-29. september
-6. október
-13. október
-20. október
Kennarar
Kostnaður
Verð 96.500 kr.
Athugið að flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjald eða hluta þess.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða