fbpx

Inngangur í almenna forritun

- Forritun og tölvur

  • Næsta námskeið hefst
    01 Jan 70
    Allir upphafsdagar
  • Tímalengd
    60 klst
  • Námsskeiðs gjald
    kr 36.000
Yfirlit

 

Á þessu námskeiði verður fjallað um Python forritunarmálið og því beitt til að skapa hin ýmsu forrit. Einnig verða tekin fyrir almenn forritunarhugtök sem nýtast í öllum nútímaforritunarmálum og farið verður yfir Git og Github vinnuflæðið sem flest hugbúnaðarfyrirtæki og teymi nýta í dag til að auðvelda samvinnu og kóðavinnslu.

Þetta námskeið er verkefnadrifið og felst mest allur lærdómur í því að leysa verkefni.

Þetta námskeið hentar vel sem undirbúningur fyrir nemendur á leið í tölvunarfræði við HA og líka fyrir alla aðra sem hafa áhuga á að læra grunnatriði forritunar. Því er ekki gert ráð fyrir að þátttakendur hafi þekkingu á þessu viðfangi fyrir námskeiðið.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeið er að fullu í fjarnámi

Efnisskrá

Það verða myndbönd á íslensku, glærur, verkefni og annað hjálparefni á kennsluvef HA. Einnig mun fólk hafa aðgang að umræðuvefnum Discord þar sem það getur sent inn spurningar og fengið aðstoð frá leiðbeinanda og samnemendum. Allar verkefnalausnir eru í formi myndbanda og einnig verður allur kóði námskeiðsins aðgengilegur.

Gert er ráð fyrir því að fólk eyði a.m.k. 5 - 10 tímum á viku í námskeiðið.

Dagskrá

Námskeiðið er alls 6 vikur.

Kennarar

Umsjónamaður: Ólafur Jónsson – Verkefnastjóri tölvunarfræðináms við HA
Kennari: Rúnar Vestmann – Nemandi í tölvunarfræði.

Kostnaður

Skráningargjald er kr. 36000.- sem greiðist með kreditkorti við skráningu eða kröfu í heimabanka fyrir upphaf námskeiðs.

 

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða