-
Tímalengd
6 vikurNámsskeiðs gjald
kr 55.000
Yfirlit
„Að finna frið í dagsins önn“ er sex vikna námskeið í núvitund og hugleiðslu fyrir alla sem vilja draga úr streitu, róa hugann og efla vellíðan í daglegu lífi. Námskeiðið byggir á aðferðum í núvitundar þar sem þátttakendur læra einfaldar en áhrifaríkar æfingar sem hjálpa þeim að vera meira til staðar í augnablikinu og takast á við álag af meiri ró og jafnvægi.
Á námskeiðinu fléttast saman fræðsla, hugleiðsluæfingar og umræður með áherslu á að þátttakendur geti nýtt aðferðirnar í eigin lífi, bæði heima og í starfi. Námskeiðið byggir á metsölubókinni Finding Peace in a Frantic World eftir Mark Williams og Danny Penman og hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á núvitund og sjálfsrækt.
Hagnýtar upplýsingar
Með námskeiðinu fylgir hefti um núvitund ásamt æfingum og myndböndum sem nemendur fá send til sín.
Námskeiðið er kennt í Háskólanum á Akureyri á þriðjudögum.
Efnisskrá
Á námskeiðinu verða eftirfarandi hæfniviðmið höfð að leiðarljósi:
-Að þátttakendur læri grunnatriði núvitundar og hugleiðslu.
-Að þátttakendur öðlist aukna meðvitund um eigin hugsanir, tilfinningar og streituviðbrögð.
-Að þátttakendur læri einfaldar og áhrifaríkar aðferðir til að takast á við streitu, kvíða og álag í daglegu lífi.
-Að þátttakendur efli nærveru, sjálfsmildi og innri ró.
-Að þátttakendur geti nýtt hugleiðslu og núvitund sem verkfæri í eigin lífi og starfi.
Þátttakendur eru hvattir til að sinna 20-40 mínútna heimavinnu á dag á meðan á námskeiðinu stendur.
Dagskrá
Námskeiðið fer fram í Háskólanum á Akureyri á þriðjudögum kl. 17:00–18:30.
Kennt er á eftirfarandi dagsetningum:
-29. september
-6. október
-13. október
-20. október
-27. október
-3. nóvember
Kennarar
Kostnaður
Verð 55.000 kr.
Athugið að flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjald eða hluta þess.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða