fbpx

Heyrnarfræði BSc

- Örebro

Yfirlit

Athugið að námið hefst í byrjun september!

Frá haustinu 2024 hefur BSc gráða í heyrnarfræði verið kennd í fjarnámi í samstarfi milli Símenntunar Háskólans á Akureyri, Háskólans í Örebro og Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.

Í fyrsta sinn er hægt að nema heyrnarfræði á Íslandi, námið er kennt með blönduðu sniði, þ.e. bóklegt nám er í fjarnámi og verklegt nám kennt í Reykjavík. Námið er kennt á ensku.

Hvað lærir þú í Heyrnarnámi?

Námið er þverfagleg heilbrigðisgrein á háskólastigi sem byggir á læknavísindum, tæknifræði og félagsvísindum með heyrn sem aðal viðfangsefni. Grunnnám heyrnarfræðinnar er á BSc stigi með möguleikum á MSc og Phd námi.

Til að starfa sem heyrnarfræðingur á Íslandi þarf starfsleyfi frá Embætti Landlæknis sem BSc námið veitir.

Möguleikar eru á að sérhæfa sig innan greinarinnar m.a. í:

  • Endurhæfingu
  • Börnum
  • Tinnitus/Eyrnasuði
  • Sérhæfðum hjálpartækjum
  • Kuðungsígræðslu
Hagnýtar upplýsingar

Heyrnarfræðingar eru löggildir sem heilbrigðisstétt. Í starfi þeirra felst greining heyrnarskerðingar, meðferð og endurhæfing hjá einstaklingum með heyrnarskerðingu. Heyrnarfræðingar meta þörf einstaklingsins fyrir frekari aðstoð í daglegu lífi. Ráðgjöf og fyrirlestrar um heyrn og afleiðingar heyrnarskerðingar eru einnig hluti af starfinu.

Gefandi starf

Starf heyrnarfræðingsins er gefandi og krefjandi á sama tíma. Í starfi sínu hitta heyrnarfræðingar fólk á öllum aldri og með mismunandi vandamál. Það snýst m.a. um að auka lífsgæði skjólstæðinga og aðstoða fólk við að taka þátt í samfélaginu, m.a. í vinnu og skóla en einnig að eiga samskipti við vini og ættingja.

Ekki bara tækni

Tæknin er ekki eina lausnin sem heyrnarfræðingar hafa til að hjálpa einstaklingum með heyrnarskerðingu. Ráðgjöf og fræðsla sem eykur möguleika fólks til þess að heyra, er stór partur af starfi heyrnarfræðinga sem felur í sér mikil samskipti við annað fólk.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námið fer fram með blönduðu sniði. Bóklega námið er alfarið fjarnám og verður hluti fyrirlestra á sænsku með textun á ensku og aðrir á ensku. 

Verknámið fer fram á Heyrnar- og talmeinastöð í Reykjavík, svo ekki er gerð krafa um að farið sé til Örebro á námstímanum. Það er ófrávíkjanleg krafa að nemendur mæti í verknámið sem spannar um 20 vikur á námsstað ( HTÍ Reykjavík). Ekki er komin nánari tímasetning á verknámsloturnar.

Lesefni, verkefni og próf eru á ensku.

Efnisskrá

Námið spannar 3 ár.

Á fyrsta árinu öðlast þú grunnþekkingu á sviði samskipta, hljóðumhverfis, hljóðvistar og vísindalega sviði heyrnarfræðinga, auk þess að skoða hegðunar- og félagssjónarmið. Þú lærir einnig vísindakenningar og aðferðir, uppbyggingu og virkni heyrnarkerfisins, sem og tengsl hljóða og túlkunar heyrnarkerfisins. Þú lærir einnig hvernig grunn heyrnarmælingar eru framkvæmdar.

Námið á öðru ári beinist fyrst að áverkum og sjúkdómum tengdum heyrnar- og jafnvægiskerfi, hvernig er hægt að rannsaka þá í tengslum við heyrnargreiningar. Þú lærir hljóðfræðilega endurhæfingu og atferlisfræði með áherslu á vitsmunagreind. Verkleg kennsla leggur áherslu á heyrnartæki og vinnu með skjólstæðinga.

Á þriðja ári er mikil áhersla lögð á heyrnargreiningu, endurhæfingu og forvarnir með tilliti til fullorðinna og barna. Einnig taka heyrnarvísindin mikið pláss, þ.e. að greina, draga ályktanir, meta og rökræða á vísindalegan hátt í lokaverkefninu. Í gegnum verklegar æfingar öðlast þú innsýn í ólík hlutverk innan heyrnarþjónustustarfsins, sem og þekkingu á mögulegum hlutverkum heyrnarfræðings innan samfélagslegar starfsemi.

Nánar má lesa um námið á síðu Örebro háskóla HÉR.

 

Inntökuskilyrði

Námið er á grunn háskólastigi, stúdentsprófs er krafist. Aðeins 8 pláss eru laus í námið fyrir haustið 2025. Umsóknir eru metnar af Örebro háskóla.

Hægt er að lesa sér til um námið og inntökuskilyrði hér

Þegar skráning hefur verið gerð hér á síðunni fá umsækjendur tölvupóst með upplýsingum um næsta skref sem er að sækja um námið beint til Örebro.

 

Dagskrá

Skráningarfrestur er til 20. apríl en opnað er fyrir umsóknir á antagning.se þann 17. mars. Ef umsækjendur eru metnir jafnir, er umsóknardagur látinn ráða, þ.e. sá sem var fyrri til að sækja um, fær plássið. 

Svar við umsóknum og boð til þeirra átta sem komast inn er sent 10. júlí 2025.  Svara þarf fyrir 19. júlí hvort umsækjandi þiggi plássið, ef ekkert svar berst er næsta umsækjanda boðið plássið.

Skráningargjald er 75.000,- kr. og verður greiðsluseðill sendur í heimabanka með gjalddaga í byrjun ágúst ef viðkomandi kemst inn. 

Við biðjum ykkur að vera í góðu sambandi við okkur hjá Símenntun þegar kemur að umsókninni. 

Kostnaður

Námið spannar 3 ár og er skráningargjald 75.000 kr á ári, samtals 225.000 kr fyrir þriggja ára nám.

ATH! Við skráningu hér á síðunni skal velja "Greiðsluseðill" í greiðslumáta. Þó er ekki innheimt neitt gjald fyrr en í ágúst og þá er sendur 75.000 kr greiðsluseðill á þau átta sem hafa staðfest plássið í námið. 

Kostnaður vegna verknámslotanna (gisting, uppihald og ferðir) er ekki innifalinn í skráningargjaldinu og getur haft aukakostnað í för með sér.

Námið er lánshæft hjá LÍN sem og hægt að sækja um námsstyrk til stéttarfélaga.

Skráningargjöldin fást ekki endurgreidd ef nemandi hættir námi.

 

 

Umsagnir um námskeið

Ha?(fðu) áhrif!

- Texti frá Eyrúnu Þóru Sigurjónsdóttur nemanda í Heyrnarfræðinni frá 2024.

 

Heyrnarfræðinámið er fjölbreytt og spennandi. Það er kennt í fjarnámi, þar sem fyrirlestrar fara fram á sænsku (með möguleika á enskum texta), flest lesefni er á ensku og verkefnum er skilað á ensku.

 

Á fyrsta ári er farið í grunnnámskeið, sem vissulega geta verið krefjandi, en námið verður sífellt meira spennandi þegar farið er í sérhæfðari viðfangsefni og verklega þjálfun. Allt verklega námið fer fram hér á Íslandi, en það er ómetanlegt að komast út í Campusveckan í upphafi skólaárs, hitta samnemendur og kennara og upplifa skólabraginn í Svíþjóð.

 

Heyrnarfræði er þverfagleg grein sem tengist fjölmörgum sviðum og býður upp á fjölbreyttar starfsleiðir – allt frá klínísku starfi til rannsókna og kennslu. Á Íslandi er skortur á heyrnarfræðingum, og sem heyrnarfræðingur geturðu raunverulega breytt lífi fólks. Að hjálpa einhverjum að heyra betur getur tengt hann eða hana aftur við umheiminn og haft djúpstæð áhrif á lífsgæði þeirra.

 

Af hverju valdi ég heyrnarfræði?

 

Ég er tónlistarkennari og tónlistarkona og hef oft verið í háværum aðstæðum, sem vakti áhuga minn á heyrnarheilsu og verndun heyrnar. Fyrir nokkrum árum skoðaði ég nám í skandinavískum háskólum og rakst á heyrnarfræði, sem hljómaði strax spennandi – en ég var ekki tilbúin að flytja út í nám á þeim tíma. Þegar ég sá að Háskólinn á Akureyri, í samstarfi við Örebro og HTÍ, bauð upp á fjarnám í greininni, þá greip ég tækifærið – og sé svo sannarlega ekki eftir því! 

 

Hvernig hefur gengið að fylgjast með fyrirlestrunum í þessu formati?

 

Það var miserfitt í upphafi, en sænskan er fljót að koma og kennarar og samnemendur eru þolinmóðir og mjög hjálpsamir. Fyrirlestrarnir eru líka textaðir á ensku, sem auðveldar mjög að fylgjast með og læra.

 

Mælir þú með þessu námi? 

Já, tvímælalaust! Námið er gefandi og fjölbreytt og býður upp á raunveruleg tækifæri til að bæta lífsgæði fólks.

 

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða