-
Námsskeiðs gjald
kr 59.000
Yfirlit
Allir kannast við „Herramannsbækurnar“ þar sem hver persóna hefur sín sérkenni og ákveðna hegðun. En í raunveruleikanum erum við ekki bara ein týpa – við erum öll margar útgáfur af okkur sjálfum.
Stundum erum við „Herra ruddi“, stundum „Ungfrú sól“ og stundum eitthvað allt annað. En hvað ræður því hvaða hlið kemur fram hverju sinni?
Svarið liggur í undirliggjandi líðan og grunntilfinningum. Hegðun okkar er sjaldnast tilviljun – hún er tjáning á því sem er að gerast innra með okkur. Reiði, gleði, kvíði eða vanlíðan móta hvernig við komum fram við aðra, oft án þess að við gerum okkur grein fyrir því.
Hagnýtar upplýsingar
Á þessu námskeiði er farið dýpra í tengsl líðanar og hegðunar – með sérstakri áherslu á samskipti á vinnustað. Þátttakendur læra að staldra við og spyrja sig:
Hver er ég í dag – og hvernig hefur það áhrif á hvernig ég mæti samstarfsfólki?
Einn lykilþáttur námskeiðsins er að læra að tjá eigin stöðu á skýran og faglegan hátt. Með því má fyrirbyggja misskilning, draga úr spennu í teymum og koma í veg fyrir að samskipti fari í persónulegar áttir. Þegar við setjum orð á álag, pirring eða þreytu á uppbyggilegan hátt, auðveldum við samstarfsfólki að skilja okkur – án þess að tengja það við sig sjálft.
Á sama tíma læra þátttakendur að „aftengja“ sig frá hegðun annarra á vinnustað – að túlka hana síður persónulega og bregðast við af meiri yfirvegun. Þessi nálgun, að afpersónugera samskipti, skapar meira traust, minni togstreitu og heilbrigðari liðsheildir.
Námskeiðið leggur áherslu á hagnýta færni sem nýtist beint í starfi:
• Að þekkja eigin viðbrögð í krefjandi samskiptum
• Að átta sig á hvað hefur áhrif á framkomu í vinnu
• Að tjá sig skýrt og faglega, jafnvel undir álagi
• Að skilja betur viðbrögð samstarfsfólks án þess að taka þau inn á sig
• Að draga úr spennu og styrkja jákvæð samskipti í teymi
Markmiðið er að efla sjálfsvitund og bæta samskipti á vinnustað með einföldum en áhrifaríkum verkfærum sem hægt er að nýta strax í daglegu starfi.
Því þegar við skiljum eigin líðan og áhrif hennar á samskipti – breytist hvernig við vinnum með öðrum.
👉 Hver ert þú í dag?
Þegar fólk lærir að nýta sér þetta í daglegu starfi verða breytingarnar fljótt sýnilegar.
Samskipti verða skýrari og heiðarlegri, misskilningur minnkar og minni spenna myndast í teymum. Fólk hættir frekar að taka hlutum persónulega og nær að bregðast við af meiri ró og fagmennsku – jafnvel í krefjandi aðstæðum.
Samstarf styrkist, traust eykst og auðveldara verður að taka á málum áður en þau vaxa. Fólk upplifir meira öryggi í samskiptum, bæði í að tjá sig og taka á móti því sem aðrir koma með.
Í stað þess að láta líðan stjórna hegðun án meðvitundar, verður hún að upplýsingum sem hægt er að vinna með.
Niðurstaðan er heilbrigðari vinnustaður, sterkari liðsheild og betri árangur.
Efnisskrá
Allir sem hafa áhuga á því hvernig eigin hegðun hefur áhrif á aðra.
Inntökuskilyrði
Það eru engin inntökuskilyrði.
Dagskrá
Námskeiðið verður haldið 16. september frá kl. 15-16.30 í Háskólanum á Akureyri.
Kennarar
Kostnaður
Verð námskeiðsins er 59.000 kr.
Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða