fbpx

Gæðastjórnun – ISO 9001

- Stjórnun og færni

  • Næsta námskeið hefst
    26 Okt 26
    Allir upphafsdagar
  • Tímalengd
    2 vikur
  • Námsskeiðs gjald
    kr 45.000
Yfirlit

Gæðastjórnun eykur á ánægju viðskiptavina, dregur úr mistökum og sóun og hefur þannig jákvæð áhrif á rekstur og stjórnun. Á námskeiðinu er fjallað um hugmyndafræði gæðastjórnunar og tekið mið af innihaldi staðalsins ISO 9001 og hvernig það snertir daglega starfsemi. Þátttakendur fá í veganesti góð ráð til að setja upp gæðastjórnunarkerfi, innleiða það og vinna eftir því. Námskeiðið hentar fyrir alla áhugasama um gæðastjórnun, sérstaklega hagnýtt fyrir stjórnendur sem þurfa að styðja við innleiðingu og notkun á gæaðstjórnunarkerfum. Hentar einnig þeim sem vinna samkvæmt gæðastjórnunarkerfi, jafnlaunakerfi, öryggisstjórnunarkerfi, upplýsingaöryggiskerfi eða annað sem byggir á stöðlum.

Fyrirkomulag fjarnáms

Alfarið fjarnám. Fjórir fyrirlestrar á netinu (upptökur), tveir zoom fundir með kennara þar sem verður tæpt á helstu atriðum úr fyrirlestrum, spurningum svarað og gefið færi á umræðum. 

Efnisskrá

Námsefni eru fyrirlestrar á netinu, gott er að hafa aðgang að ISO 9001 staðlinum en alls ekki nauðsynlegt. Bent verður á fróðlegt efni sem er aðgengilegt á netinu og bókasöfnum. Nemendur munu:

  • fá skilning á því hvernig gæðastjórnun skilar árangri
  • öðlast hvata til að taka upp gæðastjórnun
  • öðlast þekkingu á ISO 9001
  • fá praktísk ráð til að koma upp gæðastjórnunarkerfi
Dagskrá

Námskeiðið verður haldið 26. október - 9. nóvember 2026.

Þann 26. október opnast fyrir fyrstu tvo fyrirlestrana og 2. nóvember opnast fyrir síðari tvo. Zoom fundir verða miðvikudaginn 28. október kl.16:30-17:30 og miðvikudaginn 4. nóvember kl.16:30-17:30. 

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Verð námskeiðsins er 45.000 kr., minnum á að hægt er að sækja um styrki vegna námskeiða til stéttarfélaga.

Upphafsdagur
Upphafsdagur26 Okt 26
TímalengdSímenntun
Verðkr 45.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða