-
Tímalengd
21 vikaNámsskeiðs gjald
kr 339.000
Yfirlit
Grunnnámskeið í tengslamiðaðri vinnu með foreldrum og ungbörnum fyrir fagfólk sem vill styrkja fræðilegan og klínískan grunn í snemmtengslum og foreldri-barn sambandi. Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnatriði foreldri–barn meðferðar (Parent Infant Psychotherapy) og innsýn í tengdar tengslamiðaðar nálganir. Námið styður fagfólk í að dýpka skilning sinn á snemmþroska, tengslamyndun og klínísku starfi með foreldrum og ungbörnum.
Fjallað er um meginkenningar um foreldri–barn sambandið með sérstakri áherslu á tengsl, gagnkvæm samskipti og tilfinninganæmni. Nemendur kynnast því hvernig hægt er að styðja foreldra í að auka næmni gagnvart barni sínu og styðja við örugga tengslamyndun.
Einnig er fjallað um áhrif lífsreynslu foreldra m.a. áföll og streitu í umhverfi á foreldrahlutverkið. Sérstök áhersla er lögð á að skilja hvernig reynsla foreldra úr eigin bernsku getur haft áhrif á samspil þeirra við barnið, m.a. út frá hugmyndum á borð við “Ghosts in the Nursery”.
Kennslan byggir á fyrirlestrum og umræðum, myndbandsrýni auk ígrundunar og verkefnavinnu svo nemendur öðlist skilning á meðferð með foreldri og barni. Stuðst er við raunhæf dæmi og klínískar lýsingar til að dýpka skilning á hlutverki fagfólks í vinnu með ungbörn og foreldra þeirra. Nemendur fá þannig tækifæri til að tengja fræðilega þekkingu við eigin starfsvettvang og rýna í hvernig þessi þekking getur nýst í vinnu með fjölskyldum með ungbörn. Lögð er áhersla á að nemendur þrói aukna vitund um streitukerfi barna og næmni fyrir styrkleikum og áhættuþáttum fjölskyldunnar.
Hagnýtar upplýsingar
Lesefni námskeiðsins:
Alejandra Perez, Elena Panagiotopoulou, Ruth Roberts. (2026). Perspectives on Early Parenthood and Infancy, A Psychoanalytic, Neuroscientific, Developmental and Cultural Dialogue. Routledge.
Tessa Baradon and Chloe Campbell. (2023). Psychoanalytic Parent–Infant Psychotherapy and Mentalization. Routledge.
Ítarefni námskeiðsins:
Alicia F. Lieberman and Patricia Van Horn. (2011). Psychotherapy with Infants and Young Children, Repairing the Effects of Stress and Trauma on Early Attachment. London: Guilford Press.
Stern, D. N. (1995). The Motherhood Constellation: A Unified View of Parent-Infant Psychotherapy. London: Karnac Books.
Music, Graham. (2023). Nurturing Natures: Attachment and Children's Emotional, Sociocultural and Brain Development. (2nd ed.). London: Graham Music.
Sæunn Kjartansdóttir. (2009). Árin sem enginn man. Reykjavík: Mál og Menning.
Bessel van der Kolk. (2023). Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir áföll. (Þýðendur Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson) Forlagið - Vaka-Helgafell.
T. Berry Brazelton, Joshua D. Sparrow. (2006). Touchpoints-Birth to Three. Da Capo Press.
Kennarar munu einnig leggja fram annað lesefni.
Bækurnar fást hjá Bóksölu stúdenta.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið samanstendur af þremur staðlotum, fjarkennslu á milli lota í fjögur skipti (2 klst í senn), auk leshóps í nóvember.
Efnisskrá
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs mun nemandi
-þekkja helstu kenningar foreldri-barns meðferðar.
-hafa grunnþekkingu á foreldri-barn meðferð og tengslamiðaðri nálgun tengdri foreldri-barn meðferð (Parent infant psychotherapy).
-þekkja verndandi þætti sem og áhættuþætti í lífi fjölskyldna með ungbörn.
-fá innsýn í áhrif streitu, áfalla og bernskureynslu á foreldrahlutverkið.
-þekkja merki barnsins og streituviðbrögð.
-hafa innsýn í eigið sjálf í vinnu með foreldri og barni.
Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnatriði foreldri–barn meðferðar (Parent Infant Psychotherapy) og innsýn í tengdar tengslamiðaðar nálganir. Námið styður fagfólk í að dýpka skilning sinn á snemmþroska, tengslamyndun og klínísku starfi með foreldrum og ungbörnum.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði er að hafa lokið BS prófi eða sambærilegri háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, félags- eða menntavísinda. Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar eða hefur áhuga á að starfa með foreldrum og ungbörnum, svo sem sálfræðingum, félagsráðgjöfum, þroskaþjálfum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, iðjuþjálfum, uppeldisráðgjöfum eða öðru fagfólki með sambærilega menntun.
Stefnt er að því að námskeiðið verði metið í háskólum, sem ígildi 10 ECTS eininga. Námskeiðið er kennt í þremur staðlotum. SMHA getur ekki ábyrgst að námskeiðið verði metið til eininga, unnið verður að því að svo verði.
Dagskrá
Staðarlotur:
September:
Föstudagur 18. september kl. 14:00–19:00.
Laugardagur 19. september kl. 10:00–17:00.
Nóvember:
Föstudagur 27. nóvember kl. 14:00–19:00.
Laugardagur 28. nóvember kl. 10:00–17:00.
Febrúar:
Föstudagur 12. febrúar kl. 14:00–19:00.
Laugardagur 13. febrúar kl. 10:00–17:00.
Fjarkennsla (Zoom):
Fimmtudagur 8. október kl. 17:30–19:30.
Fimmtudagur 22. október kl. 17:30–19:30.
Fimmtudagur 14. janúar kl. 17:30–19:30.
Fimmtudagur 28. janúar kl. 17:30–19:30.
Leshópur:
Fimmtudagur 12. nóvember kl. 17:30–19:00.
Kennarar
Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.
Kostnaður
Verð námskeiðsins er 339.000 kr.
Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða