fbpx

Fjarþjónusta fagaðila: fagmennska í framkvæmd

- 100% fjarnám

Yfirlit

Fjarþjónusta hefur á undanförnum árum orðið sífellt stærri hluti af velferðarþjónustu, bæði heilbrigðis- og félagsþjónustu. Einnig er hún að aukast meðal ýmissa meðferðaraðila og ráðgjafa á sviði heilsu og velferðar. Þessi þróun hefur bæði aukið aðgengi að þjónustu og skapað nýjar áskoranir fyrir fagfólk. Námskeiðið veitir heildstæða innsýn í eðli fjarmeðferðar, lagalegan og siðferðilegan ramma hennar, tækifærin sem hún felur í sér og þær hindranir sem geta komið upp.
 

Hagnýtar upplýsingar

Í gegnum kennslu, umræður og verklegar æfingar á námskeiðinu kynnast þátttakendur lagalegum og siðferðilegum ramma fjarþjónustu, áhrifum netsamskipta á meðferðarsambandið og leiðum til að tryggja trúnað og öryggi. Verklegar æfingar gefa færi á að prófa ólík form fjarviðtala og takast á við raunhæfar áskoranir úr starfi.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er eingöngu kennt í gegnum Zoom og er mikilvægt að þátttakendur hafi kynnt sér það og hafi tryggt að Zoom virki í þeirra tölvu. Ekki er mælt með því að nota síma eða spjaldtölvu til að mæta á námskeiðið. Engar upptökur verða af námskeiðinu.

Kennslan fer fram með 4 klst. kennslustundum í 2 skipti og felast þær í fyrirlestrum, umræðum, verklegum æfingum og hópavinnu. Mikil áhersla er lögð á umræður, verklegar æfingar og virka þátttöku nemenda.
 

Efnisskrá

Yfirlit yfir það sem kennt er:
•    Skilgreiningar og þróun fjar(heilbrigðis)þjónustu.
•    Lagarammi, persónuvernd og fyrirmæli stjórnvalda.
•    Meðferðarsamband í fjarvinnu og áhrif stafrænna miðla á tengsl.
•    Hömlulosandi áhrif internetsins (Suler’s disinhibition effect).
•    Siðferðileg álitamál í fjarþjónustu, áhættumat og viðkvæmir hópar.
•    Öryggi gagna, persónuvernd og notkun tæknilausna.
•    Samningur við skjólstæðinga og upplýsingapakkar sem grundvöllur samstarfs.
•    Áskoranir og tækifæri fyrir fagfólk og skjólstæðinga.
•    Verklegar æfingar í mismunandi formum fjarviðtala.


Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að:
•    Þekkja helstu lög, reglur og siðareglur sem gilda um fjarþjónustu.
•    Geta byggt upp faglegt meðferðarsamband í gegnum stafræna miðla.
•    Geta metið kosti og áskoranir fjarviðtala fyrir sína skjólstæðinga.
•    Vera meðvitaðir um siðferðileg álitamál og hvernig bregðast má við þeim.
•    Hafa hagnýta færni í að nýta ólík form fjarviðtala á faglegan og öruggan hátt.
•    Geta tryggt öryggi, trúnað og fagleg vinnubrögð í fjarvinnu með skjólstæðingum.

Inntökuskilyrði

Æskilegt er að þátttakendur hafi lokið viðurkenndu námi í ráðgjafar-  eða meðferðarvinnu (t.d. á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda, markþjálfun eða öðru ráðgjafarnámi). 

Dagskrá

Þriðjudaginn 20. janúar og 3. febrúar frá kl. 13-17.

Kennarar

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Verð námskeiðsins er 49.000 kr. 

Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.

Umsagnir um námskeið

Hve mikilvægt er að gæta fagmennsku þegar kemur að persónuvernd og hve vandrataður er sá vegur í heimi tækninnar.
Varpaði skýru ljósi á þá þætti sem huga þarf að í fjarráðgjöf. Helstu þættir sem huga þarf að hjá fagaðila í ráðgjöfinni sjálfri t.d. faglegum ramma almennt bæði í stað og fjarráðgjöf. Gaf einnig innsýn inn í leiðir til að stunda fjarráðgjöf hvaða leiðir eru færar og hverjar ekki í ljósi persónuverndarlaga.

Dýrmætt að námskeiðið skyldi hafa farið fram í „fjarbúnaði“ þannig að maður fékk beina reynslu af því að nota slíkan búnað, prófa sig áfram, gera mistök og læra af þeim. Lærdómsríkt að átta sig á þeim fjölmörgu atriðum sem þarf að hafa í huga við að vinna klíníska vinnu gegnum fjarfundabúnað.
Mjög gagnlegt og flott námskeið, mér finnst gott að fá innsýn inn í lögin sem heilbrigðisstarfsfólk starfar eftir – gott að vera betur á tánum.

Virkilega ánægð með námskeiðið og hefur staðist allar þær væntingar – þú hefur náð að miðla einstaklega vel og er ég öruggari að fara út í fjárþjónustu – opnar nýja sýn á ráðgjöf 🙂 Takk kærlega fyrir mig 🙂
Það er þessi fagmennska og persónuverndaráhersla sem stendur upp úr. Það er að ýmsu að huga.
 

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða