fbpx

Aðferðir og kenningar listmeðferðar – fyrsti hluti

- Heilbrigðis og félagsvísindi

Yfirlit

Á námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir grunnstoðir listmeðferðar. Fjallað verður um meginkenningar og aðferðir listmeðferðar í sögulegu samhengi. Með blöndu af listrænni sköpun, fyrirlestrum, umræðum, lestri og verkefnavinnu öðlast nemendur skilning og þekkingu á listmeðferðinni. Nemendur taka þátt í vinnustofum þar sem þeir upplifa sköpunarferlið og þann möguleika sem það gefur. Þekking á eigin myndmáli eykur sjálfsmeðvitund og dýpkar skilning á listmeðferðinni og þeim einstaklingum sem unnið er með. Kynntur verður ýmiss konar efniviður sem nýttur er í listmeðferð og hvernig áhrif og tjáningu mismunandi efni skapar og kallar fram. Gerð verður grein fyrir hvernig innra líf einstaklingsins getur birst í táknrænni listrænni tjáningu og hvernig tilfinningaleg úrvinnsla fer fram í sköpuninni. Kynntar verða ýmsar aðferðir til greiningar sem byggjast á myndverkum. Nemendur kynnast aðferðum til að samræma listsköpun, lestur og verkefnavinnu með því markmiði að auðvelda listmeðferðarnámið og nám almennt. Nemendur fá tækifæri til að rýna sérstaklega í eigið fræða- og áhugasvið í tengslum við efni námskeiðsins. 

Hagnýtar upplýsingar

Aðalnámsefni námskeiðsins er bókin: 

Edwards, D. (2013). Art therapy. Sheffield: Sage Publications.

Einnig verða lesnar ásamt öðru lesefni bækurnar: 

Sæunn Kjartansdóttir. (2025). Gáfaða dýrið. Reykjavík: Salka. 

Bessel van der Kolk. (2023). Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir áföll. (Þýðendur Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson) Forlagið - Vaka-Helgafell.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið verður í þremur staðlotum. Fjarkennsla verður á milli lota í alls fjögur skipti í 3 klst í senn. 

Efnisskrá

Hæfniviðmið: Í lok námskeiðs skal nemandi:

•    Þekkja helstu kenningar listmeðferðar.
•    Þekkja helstu aðferðir listmeðferðar.
•    Þekkja helstu atriði í sögu listmeðferðar.
•    Hafa skilning á hvernig eigin og annarra innra líf, tilfinningar, hugsanir og aðstæður geta verið tjáðar í myndverkum.
•    Hafa öðlast aukna sjálfsþekkingu með eigin myndsköpun, umræðum, lestri, og verkefnavinnu.
•    Geta nýtt aukna sjálfsþekkingu og þekkingu á listmeðferð til að bregðast við myndsköpun skjólstæðinga/nemenda á grundvelli skilnings og þekkingar.
•    Kunna skil á ýmsum myndsköpunaraðferðum sem notaðar eru í listmeðferð.
•    Þekkja helsta listræna efnivið sem notaður er í listmeðferð og hvernig áhrif hann hefur.
•    Hafa þekkingu á listmeðferð á ýmsum vettvangi með mismunandi skjólstæðinga hópum.
•    Þekkja og geta nýtt myndköpunaraðferðir sem geta nýst við eigð nám og þekkingarsköpun.

Á námskeiðinu gefst tækifæri til að fjalla um persónulegar upplifanir, tilfinningar og hugsanir sem tengjast listsköpuninni og náminu þó með þeim tímatakmörkunum sem námskeiðið setur. Ekki eru um að ræða eiginlega listmeðferð og úrvinnslutíminn fyrir hvern og einn er takmarkaður. Mælt með að nemendurnir séu í eigin meðferð á meðan á námskeiðinu stendur. 

Námskeiðið sem er ígildi 10 ECTS eininga verður kennt í þremur staðlotum. Einstaklingar sem vilja freista þess að fá námskeiðið metið til eininga inn í meistaranám skulu skila verkefnum og mæta öðrum þeim kröfum sem slíkt nám krefst.
Ath. SMHA getur ekki ábyrgst að námskeiðið verði metið til eininga, það er undir þeim skóla sem sótt er um komið. 

Inntökuskilyrði

Nemendur þurfa að hafa lokið með viðunandi árangri einu af eftirfarandi námskeiðum eftir 2022:

· Listmeðferð 1: Grunnnámskeið (ígildi 5 eininga) hjá Símenntun Háskólans á Akureyri (SMHA) 2025 

· Inngangur að listmeðferðarfræði (fimm einingar) í Listaháskólanum 2024 og 2025 

· Inngangur að listmeðferð I í Listmeðferð Unnar 2025, (fimm einingar að innihaldi)

Nemendur sem hafa lokið námskeiðum í listmeðferð hjá Unni Óttarsdóttur fyrir 2022 þurfa einnig að ljúka Viðbótargrunnnámskeiði í listmeðferð sem kennt er í listmeðferð í Listmeðferð Unnar. 

Dagskrá

Mars námskeið:

Föstudagurinn 20. mars frá kl. 14-19

Laugardagurinn 21. mars frá kl. 10-17

Föstudagurinn 24. apríl frá kl. 14-19

Laugardagurinn 25. apríl frá kl. 10-17 

Föstudagurinn 29. maí frá kl. 14-19

Laugardagurinn 30. maí frá kl. 10-17 

 

Fjarkennsla verður á milli lota í alls fjögur skipti í 3 klst í senn sem hér segir:

Fimmtudagurinn 26. mars kl 17.30-20.30  

Fimmtudagurinn 9. apríl kl 17.30-20.30  

Mánudagurinn 20. apríl kl 17.30-20.30

Fimmtudagurinn 28. maí kl 17.30-20.30  

 

Nóvember námskeið:

Föstudagurinn 6. nóvember frá kl. 14-19

Laugardagurinn 7. nóvember frá kl. 10-17

Föstudagurinn 4. desember frá kl. 14-19

Laugardagurinn 5. desember frá kl. 10-17 

Föstudagurinn 8. janúar frá kl. 14-19

Laugardagurinn 9. janúar frá kl. 10-17 

 

Fjarkennsla verður á milli lota í alls fjögur skipti í 3 klst í senn. Dagsetningar koma inn síðar.

Tímarnir verða á Zoom og hlekkur kemur til nemenda fyrir hvern fund. 

Kennarar


 

Dr. Unnur Óttarsdóttir er kennari námskeiðsins og Elísabet Lorange aðstoðar. Helgi Garðar Garðarsson, geðlæknir, Dr. Haukur Ingi Jónasson, sálgreinir og Dr. Jordan S. Potash listmeðferðarfræðingur eru gestakennarar á námskeiðinu.
 

Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.

Kostnaður

Verð mars námskeiðsins er 239.000 kr. 

Verð nóvembers námskeiðsins er 249.000 kr. 

Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.

Umsagnir um námskeið

Umsagnir nemanda sem voru á Listmeðferð 1: Grunnnámskeiði:

Mér fannst allt mjög skemmtilegt og áhugavert á námskeiðinu. Ég gat unnið úr ákveðnum tilfinningum. Öðlaðist dýpri skilning á sjálfri mér, hvað ég vil og hvers ég þarfnast til að blómstra. Ég mæli mikið með námskeiðinu sem mér fannst allt áhugavert og lærdómsríkt. Lærði mikið um sjálfa mig og hvað ég þarf að vinna með. Einstaklingar sem hafa lent í mörgu hafa gott af því að fara þessa leið með sjálfsvinnuna. Margt sem opnast í gegnum listina. Sniðugt úrræði fyrir þá sem eiga erfitt með tjá sig með orðum.
Nína Carol Bustos

Allt var í rauninni frábært á námskeiðinu og það opnaði mig fyrir tengingu við sjálfan mig. Frábært námskeið sem kemur manni á óvart ef maður er í kennslu með börnum. Mér fannst lærdómsríkt að sjá tenginguna milli teiknaðra hluta og ritaðra. Virkilega gaman að heyra frá öðrum hvernig þeir lýsa sínum verkefnum sérstaklega þar sem við komum frá ólíkum stöðum.
Hrönn Waltersdóttir

Námskeiðið gefur góða innsýn í listmeðferð og vekur áhuga á frekara námi. Hjálpar manni að tengjast betur sjálfum sér og opnar nýja vídd til þess bæði að túlka sínar eigin tilfinningar og líka til þess að lesa í tilfinningar annarra. Kærar þakkir fyrir mjög áhugavert og gefandi námskeið.
Hólmfríður Ólafsdóttir

Æfingarnar-verklegar og umræður í kjölfarið voru lærdómsríkar og eins fas kennarans – rólyndi. Einnig fylgjast með kynningum samnemenda um greinina sem þeir völdu. Námskeiðið gefur aukna atvinnumöguleika, gott fyrir sjálfsvinnu og áfallavinnu hjá þátttakendum. Okkur vantar fleiri úrræði í meðferðarvinnu. Úrræði þar sem ekki þarf að nota orð. Frábært að fólk getur í meira mæli leitað til listmeðferðarfræðings. Takk fyrir að gefa mér þetta tækifæri.
Heiða Guðmundsdóttir

Mér fannst lærdómsríkt hvernig undirrituð getur tjáð áföll með öðru en orðum. Hvernig úrvinnsla með því að skapa getur leitt til heilunar.
Berglind Wiium Árnadóttir

Mér fannst fyrirlestrarnir, glærukynningar og að tengjast hinum nemendunum svona vel lærdómsríkt. Námskeiðið var rosalega góð innsýn í eigin hugarheim og tækifæri til að koma tilfinningum á blað og skilja þær betur.
Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir

Mér fannst lærdómsríkt að finna á eigin skinni áhrifin af því að nota aðferðir í listmeðferð.
Aldís Þorsteinsdóttir

Upphafsdagur
Upphafsdagur06 Nó 26
TímalengdSímenntun
Verðkr 249.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða