fbpx

Undirbúningsnámskeið í almennri efnafræði

- Aðfaranámskeið

Yfirlit

Undirbúningsnámskeið í almennri efnafræði fyrir nýja háskólanemendur byrjar 19. ágúst 2024.

Hagnýtar upplýsingar

Í námskeiðum í auðlindafræði, heilbrigðis- og kennaradeildum er gert ráð fyrir að nemendur hafi þessa grunnþekkingu.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er í fjarkennslu i zoom, efni tekið upp og þannig aðgengilegt fyrir þau sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.

Efnisskrá

Námslýsing: Fjallað verður um grundvallaratriði í ólífrænni efnafræði. Byggingu atóma, lotukerfið, efnatengi, efnahvörf, magnútreikninga, sýrur og basa.

Námsmat: Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir nemendur með lítinn eða engan undirbúning í efnafræði að sækja þetta námskeið og nýta tímann vel.

Lesefni: Fyrirlestra- og dæmahefti, tekið saman af kennara, sem sent verður nemendum rafrænt í kjölfar greiðslu námskeiðsgjalds.

Dagskrá

Námskeiðið er frá 19.-23. ágúst. Nákvæm tímasetning á zoom fundum gefin út þegar nær dregur.

Kennarar

Árný I. Brynjarsdóttir, efnafræðikennari.

Kostnaður

Krafa er send í heimabanka sem greiðist fyrir upphaf námskeiðs ef ekki er greitt með kreditkorti við skráningu.

Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Upphafsdagur
Upphafsdagur19 ág 24
TímalengdSímenntun
Verðkr 22.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða