fbpx

Aðfaranámskeið í stærðfræði

- Aðfaranámskeið

Yfirlit

Námskeiðið er í fjarkennslu.

Undirbúningsnámskeið í stærðfræði verður haldið seinni partinn í ágúst.

Í námskeiðum viðskipta-, raunvísinda- og kennaradeilda er gert ráð fyrir að nemendur hafi þessa grunnþekkingu. Námskeiðið er ekki síst ætlað nemendum sem hafa útskrifast úr framhaldsskóla með fáar einingar í stærðfræði.

Námslýsing: Fjallað verður um tölur, reikniaðgerðir, +og –, almenn brot, mengi, hnitakerfi, línur, bókstafareikning (algebru), jöfnur, ójöfnur, föll, hornaföll, flatarmál og rúmmál.

Efnisskrá

Námsmat:  Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir nemendur með lítinn undirbúning í því sem talið er upp í námslýsingu og þá sérstaklega þeir sem ekki eru sleipir í bókstafareikningi og notkun falla að sækja þetta námskeið og nýta tímann vel.

Lesefni: Glósur og dæmi frá kennara sem nemendur fá aðgang að í byrjun námskeiðs. Annað efni sem gott getur verið að líta í eru þær bækur sem kenndar eru í stærðfræði í framhaldsskólum t.d. STÆ 102/103 202/203.

Dagskrá

Tími: Námskeiðið stendur í tvo daga 27. og 28. ágúst og verður kennt kl. 18-21 í Háskólanum á Akureyri á Sólborg í stofu L-103 Einnig verður námskeiðið tekið upp og þannig aðgengilegt fyrir alla sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.

Kennarar

Kennari: Guðmundur Kristján Óskarsson dósent við viðskiptadeild.

Kostnaður

Verð: Námskeiðsgjald kr. 8.000 greiðist fyrir upphaf námskeiðs í heimabanka: 0162-26-30620 kt. 520687-1229. Athugið að setja aðfaranám í skýringu. Ef greitt er síðar hækkar gjaldið í 9.000 kr.

Allir sem skrá þátttöku fá rukkun fyrir námskeiðsgjaldi.

Skráning: til 20. ágúst.

Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða