fbpx

Aðfaranámskeið í fræðilegri ritun

- Aðfaranámskeið

Yfirlit

Námskeiðið er í fjarkennslu.

Undirbúningsnámskeið í fræðilegri ritun verður haldið eftir miðjan ágúst.

Námslýsing: Farið verður yfir atriði eins og málsnið, orðfæri, flæði og samhengi, hugtakanotkun, samþættingu texta og heimilda og grunnatriði varðandi meðferð og utanumhald heimilda og tilvísana.

Efnisskrá

Lesefni: Efni frá kennara.

Námsmat: Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða.

Dagskrá

Tími: Námskeiðið stendur í eina viku frá 26.-30. ágúst og verður kennt kl. 16:15-17:55 í Háskólanum á Akureyri á Sólborg í stofu L-101. Einnig verður námskeiðið tekið upp og þannig aðgengilegt fyrir alla sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.

Kennarar

Kennari: Kristín M. Jóhannsdóttir, lektor við hug- og félagsvísindasvið.

Kostnaður

Verð: Námskeiðsgjald kr. 12.000 greiðist fyrir upphaf námskeiðs í heimabanka: 0162-26-30620 kt. 520687-1229. Athugið að setja aðfaranám í skýringu. Ef greitt er síðar hækkar gjaldið í 13.500 kr.

Allir sem skrá þátttöku fá rukkun fyrir námskeiðsgjaldi.

Skráning: til 18. ágúst.

Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða