-
Námsskeiðs gjald
kr 24.000
Yfirlit
Undirbúningsnámskeið í almennri efnafræði fyrir nýja háskólanemendur byrjar 18. ágúst 2025.
Hagnýtar upplýsingar
Í námskeiðum í auðlindafræði, heilbrigðis- og kennaradeildum er gert ráð fyrir að nemendur hafi þessa grunnþekkingu.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er í fjarkennslu i zoom, efni tekið upp og þannig aðgengilegt fyrir þau sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.
Efnisskrá
Námslýsing: Fjallað verður um grundvallaratriði í ólífrænni efnafræði. Byggingu atóma, lotukerfið, efnatengi, efnahvörf, magnútreikninga, sýrur og basa.
Námsmat: Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir nemendur með lítinn eða engan undirbúning í efnafræði að sækja þetta námskeið og nýta tímann vel.
Lesefni: Fyrirlestra- og dæmahefti, tekið saman af kennara, sem sent verður nemendum rafrænt í kjölfar greiðslu námskeiðsgjalds.
Dagskrá
Námskeiðið er frá 18.-21. ágúst. Zoom fundir með kennara verða kl. 18-20.
Kennarar
Árný I. Brynjarsdóttir, efnafræðikennari.
Kostnaður
Krafa er send í heimabanka sem greiðist fyrir upphaf námskeiðs ef ekki er greitt með kreditkorti við skráningu.
Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða