-
Tímalengd
6 vikurNámsskeiðs gjald
kr 85.000
Yfirlit
Hefur þú hugmynd sem þú vilt koma í framkvæmd – eða vilt læra að virkja skapandi hugsun í starfi?
Í þessu námskeiði færðu tækifæri til að þróa hugmyndir, verkefni eða nýjar nálganir með hagnýtum aðferðum úr nýsköpunarheiminum.
Þátttakendur vinna með raunveruleg tækifæri, fá að prófa, gera tilraunir, fá endurgjöf og læra hvernig hugmyndir verða að verkefnum sem hafa áhrif.
Hagnýtar upplýsingar
Fyrstu tvær vikurnar snúast um að skilja og skapa.
Þriðja og fjórða vika eru tileinkaðar prófun og mótun virðis.
Fimmta og sjötta vika snúast um framkvæmd og áhrif.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er kennt í fjarnámi og byggir á blöndu af stuttum fyrirlestrum, verkefnavinnu, einkatímum og lifandi hópfundum.
Þátttakendur fá aðgang að kennsluvef þar sem finna má upptökur, verkefnalýsingar og leiðbeiningar.
Í viku 1, 3, 4 og 5 þá eru einkatímar í boði, þátttakendur geta bókað sig á tíma sem hentar þeim. Í viku 3 og 6 eru zoom hópfundir, fimmtudaganna 26. febrúar og 19. mars kl. 17:00-18:30.
Zoom einkafundir og hópfundir eru notaðir til að ræða hugmyndir, kynna verkefni og fá endurgjöf frá kennara og öðrum þátttakendum.
Efnisskrá
Við lok námskeiðs munu þátttakendur:
- Geta greint raunveruleg tækifæri til nýsköpunar í eigin umhverfi.
- Þróað hugmyndir með skapandi og hagnýtum aðferðum.
- Geta framkvæmt einfaldar prófanir og fengið endurgjöf frá notendum.
- Skilja hvernig hugmyndir þróast í aðgerðaráætlanir og verkefni með mælanlegum árangri.
- Kynnst leiðum til að miðla hugmynd og fá aðra með í lið.
- Hafa skilning á umhverfi nýsköpunar á Íslandi og helstu stuðningsleiðum – svo sem fjármögnun, tengslaneti og samstarfsvettvöngum sem styðja við þróun hugmynda og frumkvöðlastarf.
Dagskrá
Vika 1 – Skilgreina tækifærið
- Markmið: Að skilja vandann og hverjir njóta góðs af lausninni.
- Verkefni: Greina raunverulegan vanda, markhóp og þarfir.
- Niðurstaða: Skýr lýsing á tækifæri og notendum.
Vika 2 – Hugmyndasköpun og lausn
- Markmið: Að þróa og velja lausnir sem skapa raunverulegt virði.
- Verkefni: Hugmyndavinna og val á lausn.
- Niðurstaða: Skilgreind lausn með tengingu við vandann.
Vika 3 – Frumgerð og prófun
- Markmið: Að umbreyta hugmynd í prófanlega frumgerð.
- Verkefni: Hanna einfalda prótótýpu, prófa og safna endurgjöf.
- Niðurstaða: Lærdómur og umbætur út frá prófunum.
Vika 4 – Frá hugmynd til virði
- Markmið: Að þróa framkvæmanlega og sjálfbæra hugmynd.
- Verkefni: Kortleggja lausn, markhóp, virði og viðskiptamódel.
- Niðurstaða: Skilgreint virði og aðferð til að koma hugmynd í framkvæmd.
Vika 5 – Miðlun og áhrif
- Markmið: Að miðla hugmyndinni á áhrifaríkan hátt.
- Verkefni: Þróa sögu hugmyndar og undirbúa kynningu.
- Niðurstaða: Pitch eða kynning á hugmynd.
Vika 6 – Framkvæmd og fjármögnun
- Markmið: Að skipuleggja næstu skref og koma hugmynd í framkvæmd.
- Verkefni: Setja fram verkefnaáætlun, fjármögnun og samstarfsmöguleika.
- Niðurstaða: Klár verkefnaáætlun og kynning á verkefni.
Kennarar
Kostnaður
Verð námskeiðsins er 85.000 kr.
Minnum á að hægt er að sækja um styrki hjá flestum stéttarfélögum.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða