fbpx

Fjölbreytt úrval í fjarnámi

Símenntun HA hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að auka úrval lengri námslína sem boðið er upp á í fjarnámi. Við vitum hversu mikilvægt það er að hafa þennan möguleika, að fara í nám án þess að þurfa að segja upp vinnu, flytja milli landshluta eða jafnvel erlendis. Í dag bjóðum við upp á margar námslínur á meistarastigi í gegnum háskólann UHI í Skotlandi, heyrnarfræði við Örebro háskóla í Svíþjóð, leiðsögunám, nám í fíkniráðgjöf, verkefnastjórnun og Stjórnendanámið.

Hér fyrir neðan má finna öll þau nám sem við teljum til lengri námslína og standa yfir tvær annir eða lengur.