fbpx

Leiðsögunámið hefst 2027

Leiðsögunámið Ísland alla leið er sniðið að þeim sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi.

Námið okkar hefur hlotið viðurkenningu frá VR þess efnis að námið standist kröfur ÍST EN 15565:2008 – evrópsks gæðastaðals um hæfni leiðsögumanna og uppbyggingu þjálfunar- og réttindanáms í ferðamannaleiðsögn.

Námið spannar þrjár annir og hefst í janúar 2027. Sumarið 2027 er notað undir verkefnavinnu tengda gróðri og fuglum. Einnig geta nemendur notað sumartímann í kynnisferðir og skýrslugerð. Verklegur hluti námsins er í samstarfi við SBA-Norðurleið. Mikill áhugi er á náminu sem er ánægjulegt því að á Íslandi er töluverður skortur á leiðsögumönnum. Starfsmöguleikar eftir nám og jafnvel á meðan á námi stendur eru því mjög góðir.

Námið er kennt á íslensku en hefur verið aðlagað að ensku- og þýskumælandi nemendum sem fá að skila verkefnum og prófum á ensku eða þýsku.

Nemendur í Jökulsárgljúfrum.
Nemendur í Jökulsárgljúfrum.

Leiðsögumannanámið er núna í gangi og lýkur því með útskrift í maí 2026. Næsti hópur hefur nám í janúar 2027 og hefjast skráningar á vormánuðum 2026.

Inntökuskilyrði

  • Tuttugu ára aldurstakmark.
  • Stúdentspróf, sambærileg menntun eða raunfærnimat.
  • Gott vald á íslensku.
  • Standast inntökupróf í því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn og skólinn getur boðið upp á þjálfun í.

Inntökupróf í erlendum tungumálum (ensku og þýsku) verða haustið 2024. Nánari tímasetning er auglýst síðar.

Með umsókn þarf að fylgja stutt yfirlit yfir náms- og starfsferil.

Nemendur við Víðimýrakirkju.
Nemendur við Víðimýrakirkju.

Fyrirkomulag

Námið spannar þrjú misseri; vor 2027, haust 2027 og vor 2028.

  • Námið er að stórum hluta fjarnám og spannar þrjú misseri. Það er skipulagt þannig að mögulegt er að sinna því samhliða starfi og búa hvar sem er á landinu. Umfang námsins er a.m.k. 600 klukkustundir.
  • Á hverju misseri verða þrjár staðarlotur á Akureyri sem nemendur eiga að mæta í, oftast frá fimmtudegi til sunnudags. Skyldumæting er í staðarlotur.
  • Fyrirlestrar eru teknir upp og verða aðgengilegir nemendum í kennsluvef námsins.
  • Af og til má reikna með fjarkennslu í rauntíma.
  • Vettvangs- og æfingaferðir eru skipulagðar yfir námstímann og endar námið á sex daga ferð um landið. Gert er ráð fyrir 100% þátttöku í þessum ferðum.
  • Kennsla í leiðsögunáminu fer fram á Íslensku.
  • Nemendur eru þjálfaðir í framsetningu efnis á ensku og þýsku en ekki er um eiginlega tungumálakennslu að ræða.

Námið hefst með staðarlotu í byrjun janúar 2027.  Annað misseri hefst seinni hluta ágústmánaðar og lýkur í byrjun desember. Þriðja misseri hefst í byrjun janúar 2028 og lýkur í byrjun maí 2028. Sumarið 2027 þurfa nemendur að reikna með að verja 3-5 dögum í verkefnavinnu og kynnisferðir.

Markmið og innihald

Meginmarkmið leiðsögunámsins er að nemendur öðlist staðgóða þekkingu og færni til að geta sinnt starfi leiðsögumanns af fagmennsku og í samræmi við Evrópustaðalinn ÍST EN 15565:2008.

Að námi loknu á nemandi að:

  • Hafa tileinkað sér lykilfærni leiðsögumanns í samskiptum við ferðamenn og ferðaþjónustuaðila.
  • Hafa skilning á þörfum fólks af ólíkum uppruna og geti mætt þörfum þess.
  • Þekkja sérstöðu Íslands hvað varðar náttúru, sögu og menningu og vera fær um að miðla viðeigandi upplýsingum til ferðamanna þannig að upplifun þeirra verði jákvæð en raunhæf.
  • Búa yfir víðtækri þekkingu á helstu ferðamannastöðum og leiðum og vita hvaða afþreying og þjónusta er í boði á hverjum stað.
  • Geta aflað gagna fyrir fjölbreyttar ferðir með ólíka hópa ferðamanna um landið ásamt því að veita áreiðanlegar upplýsingar hverju sinni.
  • Vera meðvitaður um helstu skipulagsþætti ferða, geta lagt mat á ferðagögn og mótað ferðir með leiðsögn um landið í samræmi við væntingar vinnuveitanda og gesta.
  • Búa yfir fullnægjandi orðaforða og kunnáttu í því tungumáli sem leiðsagt er á.
  • Vera meðvitaður um mikilvægi þess að fylgja ætíð settum öryggisreglum og vera til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni við náttúruna, náttúruvernd og sjálfbærni.
  • Hafa skilning á eðli ferðaþjónustunnar sem atvinnugrein, mikilvægi hennar og umfangi.
  • Þekkja lög og reglugerðir sem tengjast störfum leiðsögumanna.

Leiðsögunámið samanstendur af eftirfarandi námskeiðum:

FER – Ferðaþjónusta

FRA – Ísland framtíðarinnar

JAR1 – Jarðfræði Íslands

JAR2 – Staðbundin jarðfræði

KYF – Kynnisferðir

LÍF – Lífríki Íslands, GRÓ gróður og DÝR - dýralíf

LEI – Leiðsögn

MEN – Íslensk menning

SAG – Saga Íslands

SAM – Íslenskt samfélag

SKY – Skyndihjálp*

VET – Vettvangsnám

VIN – Vinnustofa (pistlar og tungumál)

*Til að útskrifast þurfa nemendur að hafa lokið 20 klukkustunda námskeiði í skyndihjálp/fyrstu hjálp. Nemendur þurfa að greiða fyrir það námskeið aukalega.

Athugið að umfang námskeiða er mismunandi og að sum dreifast á tvö eða þrjú misseri.

Í kennsluskrá eru nánari upplýsingar um einstök námskeið og hvenær þau eru kennd.

Fagráð og umsjón með námi

Stefán Guðnason, forstöðumaður Símenntunar Háskólans á Akureyri

  • Margrét K. Jónsdóttir, fagleg umsjón
  • Ingibjörg Elín Jónasdóttir, fagleg umsjón
  • Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála
  • Elías Bj. Gíslason forstöðumaður gæða- og þróunarsviðs Ferðamálastofu

Fjölmargir kennarar og fyrirlesarar koma að náminu, hver og einn sérfræðingur á viðkomandi sviði.

Nánari upplýsingar veitir Símenntun HA á netfanginu leidsogunam@smha.is

Kostnaður

Nemendur greiða sjálfir fyrir mat í ferðum og gistingu í hringferð um landið. Námsgögn, utan námsefnis frá kennurum, eru ekki innifalin í skólagjöldum.

Semja má um greiðslufyrirkomulag áður en nám hefst t.d. skipta greiðslum eftir misseri eða greiðsludreifingu til allt að 36 mánaða.

Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá endurgreitt ef nemandi ákveður að hætta í námi á námstíma.

Styrkir:
Vakin er athygli á að ýmis stéttarfélög og vinnuveitendur veita góða námsstyrki. Einnig er vakin athygli á að hjá Vinnumálastofnun eru upplýsingar og ráðgjöf varðandi margvísleg námsúrræði fyrir einstaklinga á atvinnuleysiskrá.

Leiðsögu1
Glaumbær 2023