Unnur Óttarsdóttir
Kynning á kennaranum
Kennari námskeiðsins er Dr. Unnur G. Óttarsdóttir. Unnur er með meistara- og doktorspróf í listmeðferð og kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands. Unnur hefur sérhæft sig í listmeðferð fyrir börn í skólum sem hafa orðið fyrir erfiðri reynslu og/eða áföllum. Hún hefur í meira en 30 ár starfað við listmeðferð á eigin listmeðferðarstofu og á ýmsum stofnunum. Unnur er stundakennari við Listaháskóla Íslands og hefur hún kennt listmeðferð við Símenntun Háskólans á Akureyri og á ýmsum öðrum stöðum hérlendis og erlendis. Unnur hefur rannsakað listmeðferð og birt niðurstöðurnar í ýmsum ritum og á fyrirlestrum á innlendum og erlendum vettvangi. https://www.unnurarttherapy.is/
