Svava Björk Ólafsdóttir
Kynning á kennaranum
Svava Björk er verkefnastjóri nýsköpunar við Háskólann á Akureyri og hefur yfir 14 ára reynslu úr vistkerfi nýsköpunar á Íslandi. Hún vinnur náið með Drift EA – miðstöð nýsköpunar á Akureyri í gegnum störf sín við háskólann og tekur virkan þátt í að efla nýsköpun og frumkvöðlastarf á Norðurlandi.
Hún er stofnandi RATA, stuðningsfyrirtækis sem sérhæfir sig í fræðslu, vinnustofum og ráðgjöf tengdri nýsköpun. Einnig er hún stofnandi IceBAN – Iceland Business Angel Network, sem byggir brú milli englafjárfesta og frumkvöðla á Íslandi, og Hugmyndasmiða, fræðsluverkefnis um nýsköpun fyrir börn.
Svava kennir áfangann Nýsköpun og stofnun fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík, sem er stærsta nýsköpunarnámskeið landsins, og hefur kennt hann í nokkur ár. Hún er sjálf englafjárfestir og brennur fyrir því að efla íslenskt nýsköpunarumhverfi – allt frá fyrstu hugmynd til raunverulegra áhrifa.
