fbpx
Jordan S. Potash

Jordan S. Potash


Kynning á kennaranum

Dr. Jordan S. Potash listmeðferðarfræðingur er gestakennari á námskeiðinu. Jordan er aðstoðarprófessor við listmeðferprógramið í George Washington University, sem er ein fyrsta og elsta námsbrautin í listmeðferð í heiminum. Jordan hefur starfað við listmeðferð í 25 ár og hefur hann unnið með skjólstæðingum á öllum aldri í fjölbreyttu samhengi, þar á meðal í skólum, á heilsugæslustöðvum og í samfélagslegum vinnustofum. Hann hefur starfað með samtökum í Washington sem vinna með ungu heimilislausu fólki og fjölskyldum sem takast á við sorg. Helstu áhugasvið hans snúa að notkun listar og listmeðferðar í þágu samfélagsþróunar, félagslegra breytinga og friðar. Jordan hefur ritað fjölda greina og bókarkafla, auk þess að halda fyrirlestra á ráðstefnum og við háskóla víða um heim, meðal annars í Bandaríkjunum, Bretlandi, Hong Kong, Ísrael, Kóreu og Singapúr. Hann ritstýrði tímaritinu Art Therapy á árunum 2019–2024. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.jordanpotash.com.