Haukur Ingi Jónasson
Kynning á kennaranum
Haukur Ingi Jónasson lauk cand. theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 1994 og hefur að auki lokið S.T.M., M.Phil. og Ph.D. prófum frá Union Theological Seminary (Columbia University) í New York. Hann stundaði klínískt nám í sálgæslu (Clinical Pastoral Education) við The HealthCare Chaplaincy og Lennox Hill Hospital í New York árin 1997-2001 og lauk klínísku námi í sálgreiningu frá The Harlem Family Institute í New York árið 2001. Haukur hefur meðal annars starfað innan vébanda Landspítala-Háskólasjúkrahúss, Háskóla Íslands, og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Haukur Ingi er prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og er forstöðumaður Advanced Master of Project Management skólans. Hann starfar jafnframt sem fyrirlesari, sálgreinir á einkastofu, og ráðgjafi hjá Nordica ráðgjöf ehf. og Íslenskri sálgreiningu ehf.
Ritstörf: Meðhöfundur bókanna Leiðtogafærni, Samskiptafærni, Skipulagsfærni, Stefnumótunarfærni og Markþjálfun sem gefnar voru út af Forlaginu. Á ensku: Project Ethics, Project: Leadership, Project: Communication, Project: Strategy, Project: Execution auk þess sem hann hefur skrifað fjölda bókarkafla og greina. Hann hefur kennt fjölda námskeiða um ólík efni, meðal annars námskeið um Orsakir og eðli geðhvarfaraskana og Mannlega ímyndun í meðferðarstarfi við C. G. Jung Institute in New York og klínískri þroskasálfræði við Harlem Family Institute.
